20/10/2025
🌿 Fræðslufyrirlestur um næringu 🌿
Við bjóðum íbúa Hafnarfjarðar, 60 ára og eldri, velkomna á fræðslufyrirlestur um næringu með Agnesi Þóru Árnadóttur, næringarfræðingi (BSc í næringarfræði, MSc í íþróttanæringarfræði).
📍 Hraunseli, Flatahrauni 3, 220 Hafnarfjörður
📅 Fimmtudaginn 23. október
🕐 Kl. 13:00
Á fyrirlestrinum verður farið yfir mikilvægi góðrar næringar fyrir heilsu, orku og vellíðan, og þátttakendur fá hagnýtar ráðleggingar sem auðvelt er að nýta í daglegu lífi.
Eitt af markmiðum okkar er að stuðla að auknu heilsulæsi þátttakenda og annarra íbúa Hafnarfjarðar – því þekking á eigin heilsu og næringu er lykillinn að betri lífsgæðum.
Fræðslufyrirlesturinn er haldinn í samstarfi við Frísk í FH, Hafnarfjarðarbæ og Félag eldri borgara í Hafnarfirði (FEBH).
✨ Við hvetjum alla til að mæta, hlusta, spyrja spurninga og taka þátt í fræðandi og skemmtilegri samveru.