24/02/2026
Fimmti tími námskeiðsins fjallar um frelsi 🦋
Frelsi er auðvitað ótrúlega stórt hugtak sem teygir anga sína víða, inn í öll svið lífsins og alla okkar hugar- og tilfinningaheima.
Ert þú frjáls? ✨
Taktu eftir þínum fyrstu viðbrögðum við þessari spurningu.
Vonandi upplifir þú frelsi í öllum lífsins kringumstæðum, ég held að það hljóti að vera frábær tilfinning. Að finna ekki fyrir neinum hömlum eða takmörkunum að innan og að geta út á við gert hvað það sem mann lystir.
Einhverjar líkur eru á að þú upplifir töluvert mikið frelsi í flestu sem snertir líf þitt, en að hugsanlega séu líka einhverjar takmarkanir til staðar t.d. varðandi heilsufar, tíma, fjárhag, vinnu eða jafnvel huga. Það hversu mikið frelsi við upplifum hefur mikið með hugarfar að gera, vissulega, en svo getur líka ákveðið ófrelsi verið til staðar sem ekki er hægt að líta framhjá.
Ef þú upplifir ófrelsi á einhverju sviði, hvort finnst þér það koma innan frá eða utan❓
Ert ÞÚ að stoppa ÞIG, eða er einhver annar að gera það❓
Ef við tengjum frelsi við sjálfræði, það að hafa það um líf okkar að segja sem við viljum - frelsi til að velja, verður mikilvægi þess augljóst. Við viljum öll hafa eitthvað val um hlutina, en á námskeiðinu fjöllum við einmitt um sjálfsákvörðunarkenninguna úr jákvæðu sálfræðinni sem rammar inn okkar sálrænu grunnþarfir sem manneskjur: Sjálfræði - Hæfni - Félagstengsl
Ég hvet þig í öllu falli til að rannsaka eigið líf með augum frelsisins og spyrja þig:
✅ Hvar er ég frjáls og hvernig líður mér þá?
- Vil ég fleiri þannig stundir?
Spurðu þig svo:
❎ Hvar er ég ófrjáls og hvernig líður mér þá?
- Vil ég færri þannig stundir?
Hvað getur þú gert til að koma þér inn í aukið frelsi❓
Hvaða litlu skref munu færa þér það sem þú þarft mest á að halda í tengslum við þitt persónulega frelsi, í dag❓
Leyfðu þér að skoða allar hugsanir og tilfinningar í þessu samhengi, það gæti verið að einhver partur af þér vilji fá áheyrn.
Við eigum alltaf eitthvað inni til að skapa okkur meira frelsi í lífinu, okkar er að koma auga á það og stíga svo skrefin 👣