Golfklúbburinn Setberg

Golfklúbburinn Setberg Stofnfundur klúbbsins var haldinn hinn 27. nóvember 1994. Saga klúbbsins
Stofnun Golfklúbbs Setbergs 1994

Stofnfundur klúbbsins var haldinn hinn 27. flokk. braut.

nóvember 1994 og strax á fyrsta degi gengu 40 félagar í klúbbinn. Eftir stofnfundinn hófst hið eiginlega starf hans með því að sótt var um aðild að Íþróttabandalagir Hafnarfjarðar sem er forsenda þess að geta orðið aðili að Golfsambandi Íslands. Fyrsta stjórnin var þannig skipuð: Friðþjófur Einarsson, formaður, Pétur Einarsson gjaldkeri, Böðvar Hermannsson ritari, Guðlaugur Georgsson meðstjórnandi

og Þórarinn Sófusson varaformaður


Sumarið 1995

Þann 6. febrúar 1995 var klúbburinn orðinn fullgildur aðili að Golfsambandinu. Byrjað var að grafa fyrir golfskálanum þ. 10. maí 1995 og aðeins 6 vikum síðar var völlurinn og skálinn formlega opnaður með því að Friðþjófur Einarsson, Guðlaugur Georgsson og Eiríkur Smith léku einn hring á vellinum. Eftir opnunina fjölgaði meðlimum klúbbsins og í lok fyrsta starfsárs höfðu 127 einstaklingar gerst stofnfélagar í klúbbnum. Fyrsta meistaramót klúbbsins var haldið í júlí og sigraði Guðlaugur Georgsson opna flokkinn, Haldór Jóhann Harðarson 3. flokkinn og Gunnlaugur Óskarsson sigraði 4. Sumarið 1996

Árið 1996 var tekinn í notkun 9 holu par 3 völlur sem reyndist góð viðbót fyrir byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu spor í golfíþróttinni. Félagsmönnum fjölgaði mikið og voru orðnir tæplega 200 meðlimir í lok sumars. Kristján Kristjánsson og Lovísa Hermannsdóttir urðu klúbbmeistarar sumarið 1996 og Guðlaugur Georgsson bikarmeistari. Klúbburinn tók þátt í sveitakeppni GSÍ og endaði í öðru sæti í 5 deild og öðluðust þar með þátttökurétt í 4 deild að ári. Fjórir kylfingar náðu draumahögginu á árinu og urðu þar með fyrstu mennirnir til að fara holu í höggi á golfvellinum. Þetta voru þeir Valur B. Sigurðsson GR, Már Hinriksson GR, Hilmar Bjarnason GÖ og Eiríkur Smith sem varð þannig fyrsti klúbbfélaginn að ná þessu afreki. Þess má geta að hann er félagi nr. 1. Kylfingarnir fór allir 2. brautin á "hole in one". Sumarið 1997

Á þriðja starfsári golfklúbbsins fjölgaði félagsmönnum úr 200 í liðlega 250. Stjórnin var þannig skipuð: Friðþjófur Einarsson formaður, Þórarinn Sófusson varaformaður, Pétur Einarsson gjaldkeri, Böðvar Hermannsson meðstjórnandi, Gunnlaugur Guðjónsson ritari. Nefndir klúbbsins skipuðu: Halldór Eiríksson, Gunnlaugur Óskarsson, Ólafur Jóhannesson, Kristján Kristjánsson, Högni Friðþjófsson og Guðlaugur Georgsson. Kristján Kristjánsson og Lovísa Hermannsdóttir urðu klúbbmeistarar annað árið í röð. Bikarmeistari varð Vignir Sigurðsson. Sveit félagsins sigraði 4. deild sveitakeppnis GSÍ og leikur í 3. deild að ári, sannarlega glæsilegur árangur. Einungis tveir kylfingar náðu draumahögginu á árinu en það voru þeir Vignir Sigurðsson á 5. braut og Stefán Pétursson einnig á 5. Sumarið 1998

Á fjórða starfsári golfklúbbsins fjölgaði félagsmönnum úr 250 í 280. Stjórnin var þannig skipuð: Högni Friðþjófsson formaður, Þórarinn Sófusson varaformaður, Pétur Einarsson gjaldkeri, Heimir Sverrisson meðstjórnandi og Gunnlaugur Guðjónsson ritari. Nefndir klúbbsins skipuðu: Halldór Eiríksson, Gunnlaugur Óskarsson, Ólafur Jóhannesson, Halldór Þórðarson og Böðvar Hermannsson.


Ólafur Jóhannesson og Lovísa Hermannsdóttir urðu klúbbmeistarar annað árið í röð. Bikarmeistari varð Guðlaugur Georgsson er var þetta í annað skiptið sem hann vann þann titil. Keppt var í fyrsta skipti um titilinn bikarmeistari kvenna og varð það Lovísa Hermannsdóttir sem hlaut þann titil. Sveit félagsins sigraði 3. deild sveitakeppnis GSÍ sem fram fór á Akranesi og hækkaði þar með enn einu sinni upp um deild. Sveitina skipuðu: Brynjar Jóhannesson, Guðbjörn Ólafsson, Jóhannes Ármannsson, Kristján Kristjánsson og Ólafur Jóhannessonsannarlega glæsilegur árangur.

Þeir sem fóru holu í höggi á árinu voru Páll Rafnsson 2. hola, Steinn Jóhannesson 2. hola, Andrés Arnarson 5. hola, Þorsteinn Geirsson 5. hola, Ámundi Sigurmundsson 5. hola og Hákon Kristinsson GKG 5 . hola. Gunnar Sæmundsson fór áttundu holuna á litla vellinum á einu höggi í 31. des mótinu. Sigurður Hafsteinsson golfkennari sá um kennslu og voru allir mjög ánægðir með hans störf.

27/06/2025
Jónsmessumóti lokið í blautu veðri, en allir hressir og mikið gaman. Matur og dans í lokin. -1. sæti:Þorsteinn Erik Geir...
22/06/2025

Jónsmessumóti lokið í blautu veðri, en allir hressir og mikið gaman. Matur og dans í lokin.
-1. sæti:
Þorsteinn Erik Geirsson, Yngvi Bjarnason, Sigríður St. Sigurðardóttir og Gunnar Sigurðsson.
-2. sæti eftir bráðabana:
Þórður Dagsson, Eysteinn Einarsson, Sigurbjörn Þorsteinsson og Eyjólfur Kristjánsson.
-3. sæti:
Arnfríður I. Grétarsdóttir, Steingrímur Ólason, Heiðrún H. Gestsdóttir, Hákon Pétursson og Guðný Ósk Hauksdóttir.
Innilega til hamingju öll.

Minnum félaga á merkta klúbbfatnaðinn sem er til sölu í ræsisskálanum. Peysurnar sem eru frá hinu vinsæla merki Glenmuir...
26/06/2024

Minnum félaga á merkta klúbbfatnaðinn sem er til sölu í ræsisskálanum.
Peysurnar sem eru frá hinu vinsæla merki Glenmuir eru úr 100% lambsull og kosta
kr. 15.900 og bolirnir frá Puma, hvítir og blágráir kosta kr. 7.600. Einnig fást merkt der sem kosta kr. 2.700.

Vinsamlegast skiljið toppana af þessum eftir hjá Siggu í skálanum. Gerum átak í að hreinsa þá af vellinum því þeir eru ú...
12/07/2023

Vinsamlegast skiljið toppana af þessum eftir hjá Siggu í skálanum. Gerum átak í að hreinsa þá af vellinum því þeir eru útum allt.

Opna Vera Design kvennamótinu er lokið. Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna og úthaldið í  rigningunni! Við viljum...
01/07/2023

Opna Vera Design kvennamótinu er lokið. Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna og úthaldið í rigningunni! Við viljum þakka stelpunum hjá Vera Design sérstaklega fyrir alveg frábæra vinninga!

Úrslitin eru sem hér segir:

Með besta skor án forgjafar:

á 85 höggum var Íris Dögg Steinsdóttir GS, sem einnig var með flesta punkta í A flokki 41 punkt.

A flokkur forgjöf 0-24:

1. sæti Sigurást Júlía Arnarsdóttir
GSE með 38 punkta.
2. sæti Guðný Fanney Friðriksdóttir
GO með 37 punkta.
3. sæti Bjargey Aðalsteinsdóttir
NK með 36 punkta.

B flokkur forgjöf 24,1-54:

1. sæti Ása Sif Arnardóttir
GG með 41 punkt.
2. sæti Sylvía B. Gústafsdóttir
GR með 38 punkta.
3. sæti Kristín Inga Sigvaldadóttir
GSE með 36 punkta.

Næst holu 2/11 braut:
Sigurást Júlía Arnarsdóttir GSE
Næst holu 5/14 braut:
Guðrún Guðmundsdóttir GK
Næst holu 8. braut:
Elísabet Valdimarsdóttir GL

Vinningshafar geta sótt vinninga í Golfskálinn.

Opið konumót á laugardaginn! Setbergsvöllur er í flottu formi. Verðlaunin eru hreint út sagt frábær💍  Ekki missa af þess...
26/06/2023

Opið konumót á laugardaginn! Setbergsvöllur er í flottu formi. Verðlaunin eru hreint út sagt frábær💍
Ekki missa af þessu! Sjáumst 🏌

28/09/2022

Kæru félagar.
Bændaglíman verður næsta laugardag 1. október. Skráning á Golfbox.
Verð með mat kr. 3.500
Mæting eigi síðar en kl. 13:00 og ræst út af öllum teigum kl. 13:30.
Dregið saman í lið og skemmtum okkur vel 🏌️‍♀️🏌🏽

-Frábær dagur og mikið gert. Meðal annars voru smíðaðar tvær nýjar brýr. -Takk öll sem mættu í tiltekt og smíðar. Völlur...
30/04/2022

-Frábær dagur og mikið gert. Meðal annars voru smíðaðar tvær nýjar brýr.
-Takk öll sem mættu í tiltekt og smíðar.
Völlurinn er frábær og gaman að spila hann.
-Unglingarnir okkur voru fyrsta hollið sem fór út að spila.
-Að lokum, minnum á að völlurinn er aðeins opinn fyrir klúbbfélaga þar til annað verður tilkynnt.
-Ath!!! ekki er búið að opna WC húsið.
Góða skemmtun í sumar.

22/11/2021

Aðalfundur Golfklúbbsins Setbergs verður haldinn þriðjudaginn 7. desember nk., að Flatarhrauni 3, Hafnarfirði og hefst kl. 20:00

23/10/2021

Völlurinn er einungis opinn fyrir félaga í Golfklúbbnum Setbergi.

Address

Fagrabergi 30
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 09:00 - 21:00
Tuesday 09:00 - 21:00
Wednesday 09:00 - 21:00
Thursday 09:00 - 21:00
Friday 09:00 - 21:00
Saturday 09:00 - 21:00
Sunday 09:00 - 21:00

Telephone

+3547737993

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Golfklúbburinn Setberg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Golfklúbburinn Setberg:

Share