11/03/2024
Ingibjörg Erla Grétarsdóttir og Leo Speight kepptu um helgina á úrtökum fyrir Ólympíuleikana í París 2024 :)
Þá hafa Ingibjörg og Leo lokið keppni á Olympíu úrtökunum 2024. Því miður náðu þau ekki að tryggja sér sæti fyrir París 2024 þrátt fyrir að standa sig vel. Þau enda mótið bæði í 9 sæti sem er alls ekki slæmt á móti þar sem sterkustu keppendur evrópu eru saman komnir.
Ingibjörg byrjaði keppnina í -57 á laugardeginum gegn sterkum finskum keppanda. Ingibjörg kom sterk til leiks og gerði sér lítið fyrir og sigraði fyrri lotuna 11-2 og þá seinni 4-2 og þar með bardagann 0-2. Okkar kona því komin áfram og næsti bardagi gegn Grískri konu sem situr í 12. sæti heimslistans. Grikkinn var því miður aðeins of stór biti fyrir Ingibjörgu í þetta sinn og varð hún að játa sig sigraða 2-0. Ingibjörg lauk því keppni þar og endaði í 9. sæti.
🇫🇮 0-2 ✅
🇬🇷 2-0 ❌
Á sunnudeginum var svo komið að Leo sem keppir í -68 flokkinum. Leo fann fyrir veikindum á laugardeginum og var kominn með flensu þegar hann vaknaði á sunnudeginum fyrir keppni. Fyrsti bardagi hjá honum var gegn fyrna sterkum keppanda frá Georgíu sem situr í 57. sæti heimslistans. Leo byrjaði bardagann ekki vel og tapaði fyrstu lotu. Í lotu tvo fór okkar maður svo í gang og sigraði hann tvær seinni loturnar og þar með bardagann 1-2. Næst var svo komið að Grikkja sem er í 8. sæti heimslistans. Leo kom ákveðinn til leiks og stóð sig ótrúlega vel þrátt fyrir veikindin. Lota 1 fór 6-6 en Grikkjanum dæmdur sigur og lota tvö fór 12-10 þannig að Leo stóð vel í hárinu á honum þrátt fyrir veikindin. Gunnar landsliðsþjálfari sagði eftir bardagann að Leo hefði unnið hann ef ekki hefði verið fyrir veikindin en við komum víst aldrei til með að vita það ;) Leo tapaði því bardaganum og var úr leik. Hann endaði því líka í 9. sæti sem er ekki það sem var stefnt að en alls ekki slæmur árangur.
🇬🇪 1-2 ✅
🇬🇷 2-0 ❌
Þó svo að úrslitin hafi ekki verið þau sem stefnt var að megum við vera stolt af okkar fólki. Þau eru að bæta sig milli móta og verður spennandi að fylgjast með mótum ársins.