04/06/2026
Hæ hó og jibbí jei það er kominn Júní 💃
Ætlar ÞÚ nokkuð að missa af danspartý af bestu gerð? Sé ykkur vonandi sem flest í Hörðuvallaskóla kl.17.15 í dag 💃
Hérna er hlekkur fyrir skráningu júnímánaðar
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfoodgE1Fkl8bxQKYDagdyHnkpA7iqikrQ8X9TA4MKLt4kgOg/viewform?usp=publish-editor
Zumba fer í frí EFTIR tímann fimmtudaginn 18.júní en ég geri ráð fyrir að byrja aftur vikuna 10.-14. ágúst 💃
Ég er með það í athugun hvort ég gæti fengið salinn frekar á mánudögum og miðvikudögum í haust en læt vita þegar ég veit meira um það 💃
Ef tækifæri verða til þess að dansa úti í sólinni í sumar er aldrei að vita nema ég smelli í popup tíma en þá borgar sig að fara inn á síðuna öðru hverju þar sem fólk virðist ekki alltaf fá tilkynningu frá fb þegar ég set inn pósta😵💫
Tímarnir eru alla þriðjudaga og fimmtudaga kl.17.15 í sal Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Merktu við alla þá tíma sem þú ætlar að mæta í. Ef þú kemst ekki í tíma sem þú hefur skráð þig í vinsamlegast láttu vita með því að senda skilaboð á FB - Zumba fitness með Ingu ...