04/11/2020
Breytt skipulag í Laxá í Aðaldal
Á fjölmennum fundi Veiðifélags Laxár í Aðaldal var ákveðið breytt skipulag á veiðleyfasölu fyrir árið 2021. Öll áin verður seld sem ein heild og fækka þær jarðar sem taka þátt í samstarfinu stöngum úr 17 í 12. Utan þessa samstarfs verða jarðirnar Árbót og Jarlsstaðir. Rekin verða tvö veiðihús, veiðihúsið í Nesi og veiðihúsið Vökuholt á Laxamýri. Stefnt er með því að geta veitt veiðimönnum góða persónulega þjónustu í minni hópum. Gert er ráð fyrir að veiðmenn muni veiða alla ánna á þrem dögum, en um 70 ár eru síðan hægt var að veiða Æðarfossana, Mjósund, Brúarsvæðið, Núpafossbrún; Höfðahyl, Presthyl, Vitaðsgjafa, Hólmavaðsstíflu og Óseyrina í einum veiðitúr.
Aðalfundur ákvað jafnframt að semja við félag í eigu þeirra bræðra í Nesi Árna Péturs og Hermóðs Hilmarssona og félags landeigenda á Laxamýri um umboðssölu og umsjá með móttöku veiðimanna. Þeir Árni Pétur og Hermóður hafa um árabil rekið Nessvæðið við góðan orðstír. Landeigendur á Laxamýri hafa nýlega keypt allar eignir Laxárfélagsins á jörðinn þar með talið veiðiheimilið Vökuholt.
Markmiðið með þessu samstarfi er að minnka veiðiálag og auka það pláss sem veiðimenn hafa til veiða. Fækkun stanga er veruleg eða um 30 prósent sem ætti að auka gæði veiðanna til muna. En meðalveiði í Laxá í Aðaldal síðan 2010 860 laxar og laxar yfir 20 pund hafa verið vel á þriðja tug. Aðalfundurinn samþykkti jafnframt fiskræktaráætlun sem leggur áherslu á bætingu búsvæða með grjóti og uppbyggingu hrygningasvæða með útkeyrslu hrygningarmalar. Lögð er áhersla á uppbyggingu hrygningarstofnsins og vernd þessa merkilega stórlaxastofns.
Þeir sem hafa verið að veiða á Laxárfélagssvæðunum og vilja festa sér holl í þessu nýja fyrirkomulagi sendi póst á [email protected].