20/06/2026
5 strákar úr GH, Feyr Völundur, Hallgrímur Freyr, Hilmar Freys, Ómar Freyr og Ríkharð Valur, tóku þátt í Íslandsmóti Golfklúbba U12 ára (Sveitakeppnin) sem var spiluð í Keili, Golfklúbbi Reykjavíkur og lauk í dag á Bakkakotsvelli GM.
“Strákarnir okkar” stóðu sig frábærlega á sínu fyrsta Íslandsmóti, þeir enduðu í 4. sæti í deild sem var sú jafnasta á mótinu og unnu meðal annars liðið sem varð í 1. sæti deildarinnar 5-1 í leik föstudagsins. Þeir eru líka algjörir gleðigjafar og kurteisin uppmáluð á vellinum sem er frábært að sjá.
Við hlökkum til þess að sjá þá spila meira í sumar ásamt öðrum sem æfa hjá okkur þessar mundir. Einnig langar okkur að koma sérstökum þökkum til Örnu Rúnar sem kom til okkar síðustu tvær vikurnar og undirbjó strákana fyrir mótið 🫶