25/12/2025
Við sendum ykkur hugheilar jólakveðjur og þökkum kærlega fyrir góðar stundir á bakkanum á árinu sem er að líða, fyrir hvert kast, og hvern slag við þá stóru. Fyrir fiska sem við náðum að landa og þá sem sluppu. Allt eru þetta augnablik sem gera veiðina og samveruna við ána ógleymanlega.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla með von um strekkta strengi á nýju veiðiári 2026 og margar góðar stundir á árbakkanum.
Hátíðarkveðjur,
fólkið á bökkum Laxár