14/02/2026
*** Styrktaraðilar á búninga Vísis óskast!! ***
Góðan daginn, nú ætlum við að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið með búningapöntun í haust. Það kom í ljós að hvítir bolir eru ekki löglegir í borðtenniskeppni og hættum við því snarlega við þann lit og ákváðum í kjölfarið að endurskoða búningakaupin alveg. Niðurstaðan er sú að bolirnir verða ☀️gulir íþróttabolir☀️ (til að skera sig úr fjöldanum á mótum), samhliða þessu alveg frá því í haust erum við búin að vera að teikna og þróa logo fyrir Vísi og sést það hér að neðan, þar eru nokkur af helstu sérkennum Suðursveitar... Tignarleg fjöll með jökulhettum, ísjaki, ásamt greniskóginum sem Umf. Vísir gróðursetti á síðustu öld. Í bakgrunni gerir svo Suðursveitar sólin himininn gulann og þaðan kemur liturinn á bolina!
***
En nú leitum við eftir styrktaraðilum á bolina!!
Til að leyfa sem flestum að vera með þá er hugmyndin að setja ca. 5 styrktaraðila á bolinn, þar af væri einn aðalstyrktaraðili sem fengi stærsta plássið framan á honum.
Við erum búin að hugsa þetta fram og aftur hvernig eigi að snúa sér í því að leita eftir styrktaraðilum, en okkur langar fyrst að athuga hvort við fáum ekki styrktaraðila innan Suðursveitar eða nærsveita, það þætti okkur vænst um áður en við færum að leita lengra. Styrkupphæðin sem kæmi inn yrði nýtt að hluta til að niðurgreiða bolina svo þeir séu á verði sem stoppar engann til að eignast bol, en aðal peningurinn færi til áhalda og búnaðar kaupa fyrir völlinn okkar og til þess að geta keypt inn það sem þarf til að gera mótið okkar í sumar sem veglegast.
Verði afgangur af upphæðinni þá lofum við að honum verði vel varið til frekari uppbyggingar Vísis og skemmtana- og íþróttalífs í Suðursveit 🥳
Við reiknum með að bolirnir verði á bilinu 100-200 stk, og er þetta kjörið tækifæri fyrir fyrirtæki að sýna hvar hjartað slær!
Upphæðirnar sem við höfum hugsað okkur væru eingreiðslur á bilinu 300-500 þúsund krónur og allir bolir sem framleiddir yrðu á árinu 2026 verði prentaðir með þeim styrktaraðilum.
Ef þú eða þitt fyrirtæki ert til í að leggja slíka upphæð í styrk til Vísis og fá þitt merki á bolina okkar þá endilega sendið okkur tölvupóst, á messenger eða á annan hátt fyrir 22. febrúar, Bjarni Malmquist Jónsson ([email protected] S:661-4172) eða Aðalbjörg Bjarnadóttir ([email protected] S: 691-2541).
Vísir er að fara að senda 3-5 keppendur á Íslandsmót unglinga og fullorðinna í borðtennis, í byrjun mars, það væri því frábært ef við gætum verið komin með staðfestingu frá styrktaraðilum nógu snemma svo keppendur geti klæðst nýju Vísis búningunum á Íslandsmótunum
***
Við viljum svo þakka Þorrablótsnefndinni fyrir að gefa okkur dósapeninginn eftir þorrablótið hann kemur sér vel og tökum við fegin við slíku framlagi ef fólk eða fyrirtæki vilja styrkja Vísi með dósapening, látum við hér reikningsupplýsingar fylgja.
Kt. 700992-2339
Rknr: 0172-15-380491
***
Svo má bæta við að lokum, þau sem spila Lottó, Lengjuna eða annað hjá Íslenskri getspá þá hvetjum við ykkur til að merkja miðana ykkar með getraunanúmeri Vísis sem er 784!! Þá fær Vísir smá styrk sem munar alveg um án þess að það kosti neitt aukalega fyrir viðkomandi.
Sameinuð stöndum vér! 👊
Áfram Vísir!