Ár í lífi fuglaáhugamanns

Ár í lífi fuglaáhugamanns Fuglaskoðari, birder, fuglaáhugamaður, fuglaljósmyndun.

Leiðinda veður í dag, kvasst af SV og rigning annað slagið. Nokkur net sett upp í morgun og þeim lokað aftur í hádeginu,...
22/09/2026

Leiðinda veður í dag, kvasst af SV og rigning annað slagið. Nokkur net sett upp í morgun og þeim lokað aftur í hádeginu, einn skógarþröstur endurheimtist. Á lóðina komu tyrkjadúfa, bjargdúfa, maríuerla og skógarþrestir, lítið skoðað í dag. Eftir að veru minni í heitapottinum í sundlauginn undir kvöld lauk fannst mér ég þurfa að finna eitthvað myndefni til að byrta hér í dag, fyrsta stopp var við ræsið í Álaugarey, einn fyrsti fuglinn sem ég sá var fullorðinn dvergmáfur og eru myndirnar af honum.

Rigning langt fram eftir degi, lítið horft eftir fuglum en samt alltaf með augun opin. Um tíma var heilmikið líf á lóðin...
21/09/2026

Rigning langt fram eftir degi, lítið horft eftir fuglum en samt alltaf með augun opin. Um tíma var heilmikið líf á lóðinni, 2 tyrkjadúfur, bjargdúfa og yfir 20 skógarþrestir. Setti net upp seinnipartinn og merkti 6 skógarþresti og hauksöngvara (ný tegund á árslistann). Myndin er af hauksöngvaranum.

Í gær fór ég í Borgarfjörðinn, sá haförn, mikið af brandöndum og heiðlóum einnig 4 gulendur neðst í Anadakílsá. Á Hvanne...
20/09/2026

Í gær fór ég í Borgarfjörðinn, sá haförn, mikið af brandöndum og heiðlóum einnig 4 gulendur neðst í Anadakílsá. Á Hvanneyru voru yfir 300 blesgæsir og allavega ein litmerkt. Í dag fór ég svo heim en kom við á Suðurnesjum og fór svo Suðurstrandaveginn og þaðan á Selfoss og svo beinustu leiðina heim (svona næstum því). Byrjaði morgunin í Hafnarfirði við Hamarkotslæk (Lækinn) og sá þar hrísastelk (ný tegund á árslistann) sem fannst í gær. Hélt þaðn svo í Garðinn og leitaði að sportittlingum en fann enga, sá þessi stað steindepla og þúfuttlinga, ennig einn ljóshöfðaandarstegg ásamt ýmsu fleiru. Horfði út á sjó við Garðskaga, töluvert var af skrofum og súlum en enga sá ég gráskrofuna í dag. Í Sandgerði voru m.a. 2 lappajaðrakanar og fjöruspói. Fór í Hafnir, lítið að sjá þar, sá samt 2 steindepla. Ók svo frá Höfn í Grindavík, með smá viðkomu á Stóru- Sandvíkur tjörn og í Víkum en ekkert þar sem ég var ekki búinn að sjá. Grindavík og svo þaðan til Eyrarbakka með smá göngutúr í Arfadalsvík, þar voru m.a. fjöruspói og 7 steindeplar. Skoðaði svo á nokkrum stöðum á heimleiðinni en ekkert nýtt að sjá. Myndirnar eru af litmerktir blesgæs á Hvanneyri og hrísastelknum í Hafnarfirði.

Fór í fuglabíltúrinn í dag í Garð og Sandgerði, samt byrjaði morguninn með svartþrastar hjali í Kópavoginum. Fyrsta stop...
18/09/2026

Fór í fuglabíltúrinn í dag í Garð og Sandgerði, samt byrjaði morguninn með svartþrastar hjali í Kópavoginum. Fyrsta stopp var við hesthúsin í Keflavík þar var stór heiðlóuhópur en fann ekkert óvænt þar, svo var farið í gömlu hjallana á milli Keflavíkur og Garðs, þar má iðulega sjá rjúpur. Það var ekki mikið að sjá til landsins en um meira af sjófuglum og var mikið af gráskrofum, ég sá um 150, einnig voru nokkur hundruð skrofur og svo heilmikið af fýlum, súlum, skörfum og stórum máfum og svona til að brjóta þetta upp sá ég fullorðinn ískjóa (ný tegund á árslistann). Í Sandgerði var reytingar af vaðfuglum, sá m.a. 2 fjöruspóa, 2 lappajaðrakana og sanderlur. Svo voru nokkrir fuglaskoðarar á svæðinu. Myndirnar eru af þúfutittling í Garði og rjúpnakarra í hjöllunum.

Setti netin upp og svo tók Bjössi við merkingu um, fór og kíkti á snípuduðruna. Þar sem að það var tók og rigning í gær ...
17/09/2026

Setti netin upp og svo tók Bjössi við merkingu um, fór og kíkti á snípuduðruna. Þar sem að það var tók og rigning í gær vonaðist maður eftir flækingur í dag, sá einn hettusöngvara í Einarslundi. Fór að dæluhúsinu á Horni og í Grænahraun en fann ekkert nýtt, utan við Dynjanda voru m.a. hvinandarsteggur og 10 fjöruspóar. Áður en ég lagði af stað vestur á bóginn fór ég smá fuglarúnt um Höfn, fann ungan dvergmáf (ný tegund á árslistann) við Standey. Ferðin var til höfuðborgarinnar og skoðaði ég töluvert á leiðinni, mest frá Höf að Jökulsárlóni og svo í Landbroti og Meðallandi, sá 3 gráhegra við Krossbæ í Nesjum. Myndin er af maríuerlu við Grænahraun.

Það var spáð rigningu og einhverju hressilegu með, svo ég var rólegur í morgun, fór að vísu út fyrir kl. sjö til að horf...
16/09/2026

Það var spáð rigningu og einhverju hressilegu með, svo ég var rólegur í morgun, fór að vísu út fyrir kl. sjö til að horfa eftir snípuduðrunni áður en það hressilegasta byrjaði. Var frekar fljótur að finna hana, þetta var eina fuglaskoðun dagsins, annars sat ég mest við tölvuna að skrá inn leirutalningarnar (fuglatalningar en ekki að telja leirurnar) fyrir Náttúrstofuna. Myndin er úr safni, vatnagleða sem sást við Setberg í Nesjum 19. maí 2008. Fuglinn er merktur á báðum fótum og var niðurstaðan að hann hefði að öllum líkindum sloppið úr fuglagarði/safni.

Var seint á ferðinni í morgun að setja netin upp, þegar öll netin voru tilbúin var klukkan orði 07:15, en veiðn var ágæt...
15/09/2026

Var seint á ferðinni í morgun að setja netin upp, þegar öll netin voru tilbúin var klukkan orði 07:15, en veiðn var ágæt miðað við síðustu daga, 10 fuglar nýmerktir og 5 endurheimtir. Skoðaði leirurnar töluvert í dag en fann ekkert nýtt, snípuduðran á sínu svæði á Flóanum, þar var einn fjöruspói líka.Sá enga kríu í Óslandinu , það er fyrsti dagurinn í haust sem það gerist, það eru nú samt líkur á að einhverjar séu enn á svæðinu. Myndin er af snípuduðrunn frá í dag, óvíst að fólk finni fuglinn á myndinni en hún er þarna.

Rólegt í Einarslundi í dag, merkti fyrsta músarrindil haustsins og einn þúfutittling. Sá snípuduðruna snemma í morgun, f...
14/09/2026

Rólegt í Einarslundi í dag, merkti fyrsta músarrindil haustsins og einn þúfutittling. Sá snípuduðruna snemma í morgun, fór í stuttan Nesja fuglarúnt, hesthús, Þveit og Krossbær, sá m.a. 3 gráhegra og 2 himbrima á Þveit. Ennþá ber nokkuð á maríuerlum og sá ég alla vega 8 fugla í bænum einnig 2 tyrkjadúfur. Fór í síðustu leirutalninguna fyrir Náttúrstofuna þetta árið, heilmikið að sjá, utan við Óslandið voru m.a. 2 margæsir, 520 jaðrakanar, 350 tjaldar, 850 sendlingar og 1200 rauðbrystingar. Við Standey var ung grálóa og 120 rauðbrystingar auk fleiri tegunda, mjög lítið af fuglum á Sílavík. Flóinn er tvö talningasvæði, heilt yfir ekki mikið af fuglaum þar sá m.a. snípuduðruna, fjöruspóa og 70 urtendur. Skarðsfjörðurinn er þrjú talningasvæði þar voru hettumáfar mest áberandi um 700 fuglar, einnig mátti sjá þar 185 brandendur og um 100 toppendur, af vaðfuglum var mest af lóuþrælum um 750 en einungis 5 fjöruspóar sáust af þeim 24 sem hafa verið að sjást undanfarið. Við dæluhúsið á Horni var rjúpa sem er ekki algeng tegund á því svæði og svo var stór helsingja hópur á túnum á Horn yfir 500 fuglar. Myndirnar eru af rjúpunni á Horn og músarrindlinum sem ég merkti í dag.

Netin sett upp í morgun, heldur meira af fuglum í og við Einarslund en síðustu daga, merktum 10 fugla, þ.a. var 20 þúsun...
13/09/2026

Netin sett upp í morgun, heldur meira af fuglum í og við Einarslund en síðustu daga, merktum 10 fugla, þ.a. var 20 þúsundasti skógarþrösturinn, glókollur endurheimtist. Fór og horfði eftir snípuduðrunni og fann á flóðsetri á sama stað og hún fannst fyrst þann 30. ágúst s.l. Fór lítið um í dag en leit aðeins yfir Flóann, Sílavík og Ósland, ekkert nýtt að sjá, kríunum fer ört fækkandi og voru 14 í Óslandi. Heima á lóð kom tyrkjadúfa, bjargdúa og skógarþrestir. Myndin er af 20 þúsundasta skógarþrestinum í neti, sem merktur er hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands.

Byrjaði daginn á að setja netin upp, merktum 3 skógarþresti, netunum var lokað í hádeginu. Fór aðeins um á Höfn mest að ...
12/09/2026

Byrjaði daginn á að setja netin upp, merktum 3 skógarþresti, netunum var lokað í hádeginu. Fór aðeins um á Höfn mest að horfa eftir vaðfuglum, byrjaði á á Flóanum að leita snípuduðrunnar á háflóðinu en fann ekki. Skoðaði Stekkakeldu og Sílavík, fann gulllóu á Sílavík auk rúmlega 100 heiðlóa og yfir 1000 lóuþræla auk fleiri fugla. Fór hring í Óslandi en sólin var erfið þar að vanda, þar var stór hettumáfshópur, a.m.k. 2 sílamáfar og nokkrar kríur svo eitthvað sé nefnt. Fór svo þegar töluvert hafði flætt og leitað að snípuduðrunni og fann hana auk 12 annara tegunda á Flóanum. Lítið var af fuglum í Einarslundi en þar flugu yfir tveir rúmlega 40 fugla heiðagæsahópar, nokkrir í viðbót flugu yfir Höfn, allir á vesturleið. Heima á lóð kom tyrkjadúfa, bjargdúfur og skógarþrestir. Myndirnar eru af jaðrakan og tyrkjadúfunni.

Address

Hagatún 8
Höfn
780

Telephone

+3548940262

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ár í lífi fuglaáhugamanns posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ár í lífi fuglaáhugamanns:

Shortcuts

Share