Þórey Guðný - ÍAK einkaþjálfari

Þórey Guðný - ÍAK einkaþjálfari IAK einkaþjálfari
REHAB Trainer Hugsunin er að brúa bilið milli einkaþjálfara og sjúkraþjálfara. Hvert tímabil eru 4 vikur.

Þórey Guðný Sigfúsdóttir
IAK einkaþjálfari
REHAB trainer

Ég er mentaður ÍAK einkaþjálfari frá íþróttaakademíu Keilis. ÍAK einkaþjálfaranámið er ítarlegasta einkaþjálfaranámið sem er í boði á Íslandi og hefur einkunnarorðin fagmennska og þekking að leiðarljósi.

Ég er einnig REHAB trainer. REHAB trainer þjálfarar notast við endurhæfingarþjálfun og "posture pro" til að vera hæfari til að þjálfa f

ólk með væga verki og stoðkerfisvandamál. Tek það sérstaklega fram að REHAB trainer er alls ekki það sama og sjúkraþjálfari en ég tel mig vera hæfari, eftir að hafa tekið REHAB trainer þjálfararéttindi að taka á móti kúnnum sem eru t.d að koma frá sjúkraþjálfara. Líkamsstöðugreining, ástandspróf, mælingar, matardagbækur og þjálfun hjá einkaþjálfara í Sporthöllinni 3 í viku er það sem er innifalið í einkaþjálfuninni. Hvort sem markmiðið er að grennast, léttast, þyngjast, fá aukið þol eða bara líða betur, mun þjálfarinn þinn hjálpa þér að komast nær þínum markmiðum. Oft er fólk með sín markmið þegar byrjað er að þjálfa en síðan koma oft í ljós veikleikar í líkamanum sem hafa leitt til vöðvaójafnvægis. Þetta þarf að vinna með og oft finna kúnnar mikinn mun á sér þegar þrálát spenna eða verkir hverfa. Verð fyrir einkaþjálfun er 40.000 kr fyrir eitt tímabil og þarf að borga Sporthöllinni sér fyrir aðgang að líkamsræktarstöðinni. Verð á mismunandi líkamsræktarkortum Sporthallarinnar og greiðslukjörum auk opnunartíma Sporthallarinnar má sjá á http://www.sporthollin.is/
Til að fá frekari upplýsingar um Sporthöllina er einnig hægt að hafa samband í síma 478-2221. Til að hafa samband við mig [email protected] eða 6152281

Elsku vinir (Sérstaklega karlmenn / strákar) Þannig er nú mál með vexti að ég er að vinna að mastersrannsókn og könnunin...
22/03/2020

Elsku vinir (Sérstaklega karlmenn / strákar)

Þannig er nú mál með vexti að ég er að vinna að mastersrannsókn og könnunin mín var því miður gölluð. Ég þurfti að henda öllum svörum sem ég var komin með og sé fram á að ég geti ekki náð að útskrifast eftir þessa önn. Ég leitaði til snillinga sem samþykktu að gefa mér vinninga í facebook leik og með kraftaverki gæti ég náð nógu mörgum svörum næstu 10 daga að klári dæmið. Afsakið aftur þetta en þætti ofsalega vænt um ef þið góðhjartaða fólk mynduð styrka þennan námsmann og taka þátt í könnuninni minni og jafnvel deila leiknum

Glæsilegir vinningar í boði. Gjafabréf frá lúxushótelinu Hotel south coast, snorkle fyrir 2 í Silfru frá Troll expeditions, húðvörur frá Sóley Organics og páskaegg nr 11 frá Nóa Siríus

24/05/2018

Sælt veri fólkið ! Ég ætla að vera með bandvefslosun í næstu viku. þeir sem hafa áhuga geta haft samband hér eða í síma 6152281

Ofurgísli er bara meðetttta ❤️
22/11/2017

Ofurgísli er bara meðetttta ❤️

There is no excerpt because this is a protected post.

Sjá þessa flottu skvísu ! Til lukku með árangurinn Wiktoria :D
21/11/2017

Sjá þessa flottu skvísu ! Til lukku með árangurinn Wiktoria :D

24/06/2017

Of gott :D

12/02/2017

ég á lausan einn tíma í bandvefslosun kl 9 í fyrramálið ef eh vill

08/02/2017

Allir tímar í bandvefslosun á mánudaginn eru búnir og verð aftur í lok mánaðarins . Endilega sendið skiló ef þið viljið að ég hafi samband þegar nær dregur

08/02/2017

hæ hæ . ég á 2 lausa tíma á mánudaginn næsta í bandvefslosun og síðan verð ég ekkert fyrr en í lok mánaðarinns. Ég er símalaus núna þannig að best er að senda mér skiló á facebook . annars er hægt að skilja eftir símanúmer hjá Kollu í sporthöllinni og ég hringi til baka um leið og ég get. Takk fyrir :)

07/02/2017

sælt veri fólkið. langt síðan ég hef hugsað um þessa síðu. Ég hef ekki verið að bæta við mig kúnnum undan farið vegna of fárra tíma í sólarhringnum. Ég verð ekki þétt næstu mánuði með bandvefslosun en næstkomandi mánudag er ég með nokkra lausa tíma og svo ekki fyrr en lok mánaðarins. Ég verð komin með símann minn aftur í næstuviku vegna smá símaslys en endilega hafið samband bara hér á facebook ef þið viljið fá tíma.

Eru ekki allir búnir að taka kvöldið frá ? Það er Happy hour á Z bistro í kvöld og svo fyrir æðislega fjölskildu skemmtu...
27/01/2017

Eru ekki allir búnir að taka kvöldið frá ? Það er Happy hour á Z bistro í kvöld og svo fyrir æðislega fjölskildu skemmtun er krakka Voice bíó í Nýheimum kl 19:00 . Hornfirðingar sameinist og eigum yndislegt kvöld saman

Styttist í stóru stundina! Á morgun verður góður dagur, fullur af gleði og hamingju með frábæru liði. Takk enn og aftur til allra stuðningsmanna minna, fyrir að deila öllu sem við mér kemur. Kosningin á morgun skiptir mig ótrúlega miklu máli, þar sem að það væri draumur að komast í úrslit. Ykkar atkvæði skiptir máli. Hlakka til syngja fyrir ykkur . Love love love

Viljiði tékka á þessu elskurnar
20/11/2016

Viljiði tékka á þessu elskurnar

Address

Höfn
780

Telephone

+3546152281

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þórey Guðný - ÍAK einkaþjálfari posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Þórey Guðný - ÍAK einkaþjálfari:

Share