Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ

Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ Ungmennasambandið Úlfljótur var stofnað 28. maí 1932

Við skorum á áhugasama að taka rúntinn vestur og etja kappi við nágranna okkar þann 29. ágúst!
18/08/2026

Við skorum á áhugasama að taka rúntinn vestur og etja kappi við nágranna okkar þann 29. ágúst!

Minnum á skráningu á héraðsmót USVS í frjálsíþróttum sem fram fer á Víkurvelli laugardaginn 29. ágúst nk. Opið fyrir skráningar til 27. ágúst - nánari upplýsingar á meðfylgjandi auglýsingu.

Viljum vekja athygli á ALLIR MEÐ á Unglingalandsmóti UMFÍ - Ungmennafélag ÍslandsALLIR MEÐ - Samstarfsverkefni íþróttahr...
21/07/2026

Viljum vekja athygli á ALLIR MEÐ á Unglingalandsmóti UMFÍ - Ungmennafélag Íslands

ALLIR MEÐ - Samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar sem gengur út á að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn í íþróttum.

Nú styttist í Unglingalandsmótið, sem fer fram um Verslunarmannahelgina og við hjá Allir með hlökkum til þess að vera þar með ykkur.

Við viljum hvetja öll börn og fjölskyldur til að taka þátt í þessari stórskemmtilegu helgi. Hún er frábært tækifæri til að taka þátt, prófa nýja hluti, eignast nýja vini og hafa gaman en öll börn sem taka þátt á vegum Allir með fá bol.

Skráning er nú opin í fullt af skemmtilegum og margbreytilegum íþróttum en á laugardeginum verður einnig sérstök dagskrá frá Allir með:

Hjólastólarugby
Special Olympics körfubolti
Stjörnuleikar

Þeir sem mæta á Unglingalandsmótið á vegum Allir með stendur til boða að gista í skólanum sem er nálægt íþróttasvæðinu. Einnig verðum við með Allir með tjald á svæðinu sem verður okkar samkomustaður yfir helgina. Þar verður hægt að fá upplýsingar, hitta okkur, slaka á eða bara setjast niður og spjalla.

Þá langar okkur sérstaklega að bjóða öllum að hittast á föstudeginum frá 18:00-20:00 í sameiginlegt grill. Hver og einn kemur með sinn eigin mat, við grillum saman, borðum og förum síðan saman á opnunarhátíðina sem hefst kl. 20:00.

Allir krakkar sem mæta á Unglingalandsmótið á vegum ALLIR MEÐ þurfa ekki að greiða fyrir þátttöku. Til þess að skrá börn og ungmenni þarf að senda tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum til verkefnastjóra ALLIR MEÐ ([email protected])

Fullt nafn barns
Kennitala barns
Greinar sem barn vill skrá sig í – Dagskrá
Bolastærð barns
Fullt nafn foreldris/forráðamanns
Símanúmer foreldris/forráðamanns
Netfang foreldris/forráðamanns
Sveitarfélag og póstnúmer
Munuð þið nýta ykkur gistiaðstöðu sem boðið er upp á í skólanum
Ef já, hversu margir
Þið fáið staðfestingu í tölvupóst um skráningu og verður hún síðan færð inn í Abler.

Skráning er til og með sunnudeginum 26. júlí.

Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki! Skráningu lýkur sunnudaginn 26.júlí!USÚ hvetur félagsmenn ...
16/07/2026

Unglingalandsmót UMFÍ um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki! Skráningu lýkur sunnudaginn 26.júlí!
USÚ hvetur félagsmenn til að taka þátt og niðurgreiðir þátttökugjald um 6.000- (þú skráir þig á Abler, við sjáum það og verðum í sambandi varðandi endurgreiðslu á niðurgreiðslunni).

Hér er allt um mótið! Athugið að greinarnar eru komnar inn 🙂 https://www.umfi.is/vidburdir/unglingalandsmot/

Sjáumst á Króknum um versló 🥳
Unglingalandsmót UMFÍ - Ekki bara mót, líka minning ❤️💙🤍

Ólympíudagurinn á glænýja Vísisvellinum í Suðursveit á föstudaginn! Allir velkomnir, SJÁUMST 🙌🏼
24/06/2026

Ólympíudagurinn á glænýja Vísisvellinum í Suðursveit á föstudaginn! Allir velkomnir, SJÁUMST 🙌🏼

Magnað afrek! Minnum á einstaklega metnaðarfullt mót sem Ungmennafélagið Vísir heldur um helgina!
24/06/2026

Magnað afrek!
Minnum á einstaklega metnaðarfullt mót sem Ungmennafélagið Vísir heldur um helgina!

🔥 Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þegar eldmóður sjálfboðaliða skilar sér í verkefnum sem hafa varanleg áhrif á samfélagið.

Bjarni Malmquist Jónsson var valinn Íþróttaeldhugi ársins 2025 af valnefnd ÍSÍ fyrir framúrskarandi starf sitt í þágu íþróttahreyfingarinnar í Suðursveit. Með ótrúlegum drifkrafti og seiglu leiddi hann endurvakningu Ungmennafélagsins Vísis og sameinaði íbúa sveitarinnar um uppbyggingu fjölnota íþróttavallar við Hrollaugsstaði. Það sem hófst sem hugmynd varð að öflugu samfélagsverkefni þar sem fjöldi fólks lagði hönd á plóg.

Og nú er komið að því að nýi fjölnota íþróttavöllurinn á Hrollaugsstöðum verður formlega vígður á laugardaginn. Í skemmtilegu viðtali á fréttamiðlinum Vísir segir Bjarni frá uppbyggingunni og hvernig samfélagið sameinaðist um að gera völlinn að veruleika.
Við óskum Bjarna og öllum þeim sem komu að verkefninu innilega til hamingju með þennan glæsilega áfanga. 👏

Hérna er viðtalið:👉 https://www.visir.is/g/20262901221d/nyr-ithrottavollur-vekur-athygli-i-famennri-sveit

Ólympíudagurinn á Vísis velli í Suðursveit á föstudag milli kl 13 og 15
24/06/2026

Ólympíudagurinn á Vísis velli í Suðursveit á föstudag milli kl 13 og 15

🌍 Í dag, 23. júní, er hinn árlegi Ólympíudagur haldinn hátíðlegur um allan heim. Hlutverk hans er að minna á mikilvægi hreyfingar, þátttöku og samveru og þau gildi Ólympíuhreyfingarinnar sem standa henni næst: vinátta, virðing og að gera sitt besta.

💫ÍSÍ mun í því samhengi halda upp á Ólympíudaginn næstkomandi föstudag, 26. júní, á Vísisvellinum í Suðursveit í samstarfi við Svæðisstöð íþróttahéraða á Austurlandi og Ungmennafélagið Vísi. Börn og unglingar af svæðinu munu þar koma saman til að prófa fjölbreyttar íþróttagreinar og njóta hreyfingar og samveru. 🏃‍♀️🏀⚽🤾

🎉 Það þótti tilvalið að halda upp á Ólympíudaginn á Vísisvellinum í ár, þar sem vígslumót hins nýja vallar fer fram daginn eftir. Framundan er því sannkölluð íþróttahelgi í Suðursveit þar sem ný og glæsileg aðstaða verður formlega tekin í notkun.

🌍 Frekari upplýsingar um Ólympíudaginn og hvernig honum er fagnað víða um heim má finna hér: https://www.olympics.com/ioc/olympic-day

Mikilvæg tímamót sem ber að fagna 👏
19/06/2026

Mikilvæg tímamót sem ber að fagna 👏

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Háskóli Íslands hafa gert með sér samstarfssamning sem auðveldar íþróttafólki í afrekshópum ÍSÍ að samræma nám og afreksíþróttaiðkun.

Minnum á að umsóknarfrestur rennur út á miðnætti á laugardaginn 20.júní. Allir þeir sem telja sjóðinn eiga við sig eru h...
18/06/2026

Minnum á að umsóknarfrestur rennur út á miðnætti á laugardaginn 20.júní. Allir þeir sem telja sjóðinn eiga við sig eru hvattir til að senda inn umsókn!

Allar nánari upplýsingar má finna hér 👇og á heimasíðu sambandsins [email protected]

Nánar á heimasíðu Úlfljóts - www.usu.is

Nánar á heimasíðu Úlfljóts - www.usu.is
19/05/2026

Nánar á heimasíðu Úlfljóts - www.usu.is

Address

Höfn

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ungmennasambandið Úlfljótur - USÚ:

Shortcuts

Share