Hlaupahópur Hornafjarðar

Hlaupahópur Hornafjarðar Hlaupahópur Hornafjarðar er samfélag hlaupara á Höfn og nágrenni. Helga Árna heldur utan um hópinn.

Vorhlaup í kvöld - það má alla vega með sanni segja að hitastigið fari örlítið hækkandi og sólin farin að hækka verulega...
08/04/2026

Vorhlaup í kvöld - það má alla vega með sanni segja að hitastigið fari örlítið hækkandi og sólin farin að hækka verulega a lofti! 🌞🌱🌞
Níu hlauparar hlupu 5 km hringinn góða -takk fyrir þátttökuna! 🤩
Stefnum á gott utanvegahlaup í júní - og heyrst hefur af orðrómi um áhuga fyrir þríþraut (!) 🏊‍♀️🚴‍♂️🏃‍♀️
Ef hugmyndir að viðburðum - endilega heyra í Helgu.

Hei - já - það er 5 km hlaup á dagskrá í vikunni ‼️Kjörið að koma kolvetnahleðslu páskanna í góða notkun 🍫🐣👉Á miðvikudag...
06/04/2026

Hei - já - það er 5 km hlaup á dagskrá í vikunni ‼️

Kjörið að koma kolvetnahleðslu páskanna í góða notkun 🍫🐣

👉Á miðvikudag, 8. apríl, kl 18.00

ENGIN SKRÁNING og engin tímataka
.... bara mæta og hlaupa/jogga/hlabba/labba 🙂
⌚️Lagt af stað frá sundlauginni kl 18.00 - kjörið að taka pottaspjall á eftir 💧
Réttsælis hringur - byrjað er að hlaupa um leiruna,

https://fb.me/e/3kmc1wuXp

17 stk hlauparar mættu í 5 km vetrarhlaup í kvöld 🙌🏿-  veturinn  minnti á sig með nöprum  norðanvindi og frosti en falle...
11/02/2026

17 stk hlauparar mættu í 5 km vetrarhlaup í kvöld 🙌🏿
- veturinn minnti á sig með nöprum norðanvindi og frosti en fallegt febrúarsólarlagið gaf góð fyrirheit um að daga er farið að lengja - það styttist í vorið og stefnt á annað 5 km hlaup þann 8.apríl 🏃🏃‍♀️

Hei - já - það er 5 km hlaup á dagskrá í vikunni ‼️👉Núna á miðvikudag, 11.feb, kl 18.00ENGIN SKRÁNING og engin tímataka ...
09/02/2026

Hei - já - það er 5 km hlaup á dagskrá í vikunni ‼️
👉Núna á miðvikudag, 11.feb, kl 18.00
ENGIN SKRÁNING og engin tímataka
.... bara mæta og hlaupa/jogga/hlabba/labba :)
⌚️Lagt af stað frá sundlauginni kl 18.00 - kjörið að taka pottaspjall á eftir 💧

https://fb.me/e/3TcAB3baY

🥳"Gamlárshlaup" 2025 - Uppgjör 🥳"Gamlárshlaupið" varð reyndar að nýárshlaupi. ;) Slæm vindaspá þann 31.12.2025 leiddi ti...
03/01/2026

🥳"Gamlárshlaup" 2025 - Uppgjör 🥳

"Gamlárshlaupið" varð reyndar að nýárshlaupi. ;) Slæm vindaspá þann 31.12.2025 leiddi til þess að hlaupinu var frestað fram á nýárið. Kuldinn vissulega beit í kinnar í dag, laugardag 3.janúar 2026, en vindurinn var nokkuð hóflegur!

🤩32 furðuverður, fangar og önnur kynjadýr tóku þátt þar sem boðið var upp á 3, 5 og 10 km hlaup.

🏆3 km - Fyrstu hlauparar kk/kvk
Leonard Janusson
Lena Hrönn Marteinsdóttir
🏆 5 km - Fyrstu hlauparar kk/kvk
Ívar Örn Jónsson
Helga Árnadóttir
🏆10 km - Fyrstu hlauparar kk/kvk
Stefán Viðar Sigryggsson
Sigríður Helga Axelsdóttir

Fyrstu hlaupara fengu að launum konfekt í boði Nettó Höfn.

🤡👺Þorbjörg Gunnardóttir og fjölskylda hélt uppteknum metnaði í búningagerð en þau mættu til leiks sem fangavörður með fanga sína og hluti að launum skottertu í verðlaun, í boði Skinney-Þinganess.
🌭Guðrún Ásdís Sturlaugsdóttir mætti einnig með sína fjölskyldu uppábúna og hlutu þau einnig að launum skottertu, í boði Bjarkar bókara.

👏Útdráttarverðlaun voru veitt í boði Hótel Höfn, Ottó veitingastaðar, Subway og Tehússins.

🥰Kærar þakkir til allra styrktaraðila!

🥰Kærar þakkir til þeirra sem mættu og tóku þátt í gleðinni!

Gleðilegt nýtt hlaupaár!

Minnum á "Gamlárshlaupið" á morgun, laugardag, 3. janúar!⌚️ KL 11.00: Ræs í 3 og 5 km⌚️ Kll. 10.30: Ræs í 10 km (2x 5 km...
02/01/2026

Minnum á "Gamlárshlaupið" á morgun, laugardag, 3. janúar!

⌚️ KL 11.00: Ræs í 3 og 5 km
⌚️ Kll. 10.30: Ræs í 10 km (2x 5 km hringur)

Skráning á Abler - https://www.abler.io/shop/umfsindri/frjalsar

⬇️Kort af hlaupaleiðum hér fyrir neðan. ⬇️

Við höldum okkur við búningaþemað!
🎉Flugeldar í verðlaun fyrir flottustu búningana (þrettándinn er enn eftir!)
🍫Konfekt fyrir fyrstu hlaupara í hverri vegalengd kk/kvk
🥕Útdráttarverðlaun - gjafabréf á veitingastaði

Hið árlega jólaljósakakóhlaup Hlaupahóps Hornafjarðar verður haldið 3. desember,Byrjum við sundlaug og endum í golfskála...
30/11/2025

Hið árlega jólaljósakakóhlaup Hlaupahóps Hornafjarðar verður haldið 3. desember,
Byrjum við sundlaug og endum í golfskálanum.
Ca. 45 mín hlaup - en sjálfsagt að lengja/stytta fyrir þau sem sem vilja!
Skráningargjald er 1000 kr og fer uppí efniskostnað - greiðist á staðnum.

Um að gera að haka við "going" í viðburðinum, til að sjá ca fyrirhugaða mætingu!
https://fb.me/e/3ZbYIHtN9

🇸🇮💫🤩 Ljubljana 2025 🤩💫🇸🇮Vá! Það er hreinlega bara ekki hægt að segja neitt annað eftir velheppnaða ferð Hlaupahóps Horna...
21/10/2025

🇸🇮💫🤩 Ljubljana 2025 🤩💫🇸🇮

Vá!

Það er hreinlega bara ekki hægt að segja neitt annað eftir velheppnaða ferð Hlaupahóps Hornafjarðar til höfuðborgar Slóveníu þetta haustið.

➡️ 15 galvaskir hlauparar skráðu sig til leiks í 10 km (3), hálft (8 ) eða heilt maraþon (4), sem fór fram í Ljubljana 19. október.

✅️ Öll skiluðu sér í mark 🥳
✅️ Öll uppskáru eins og búið var að leggja inn fyrir og mörg gott betur en lagt var fyrir hlaupaspádóms-gyðjuna fyrir hlaup 👊
✅️ Öll einróma um gleðina og kátínuna sem einkenndi þessa fallegu haustdaga 💃
✅️ Öll sammála að álíka fjör skal endurtekið eftir ekki of langan tíma 💫

Heimsferðir buðu uppá pakkaferð, beint flug og hótel á besta stað m.t.t. staðsetningar fyrir maraþon og miðbæjarstemmingu í þessarari fallegu og vinalegu, slóvensku borg. 💙🤍❤️

🌞 Veðurguðirnir sáu um 100% góðar hlaupaaðstæður, næstum logn, smá sól og 10-12°C
🫶Mjög vel staðið að hlaupinu og allri umgjörð
🥳Heimafólk sá svo um að afburða hvatningu og stemmingu í brautinni 💯🫶🎺🥁

Látum örfáar myndir fylgja með 😉

Fatnaður til sölu! - Nánast ónotað.Kvk jakki og síðermabolur í stærð LSokkar í stærð M- Heyrið í Helgu fyrir upplýsingar
23/09/2025

Fatnaður til sölu! - Nánast ónotað.
Kvk jakki og síðermabolur í stærð L
Sokkar í stærð M
- Heyrið í Helgu fyrir upplýsingar

Stórglæsilegur hópur Hornfirðinga sem tók þátt í Öræfahlaupinu í dag 🤩Við förum ekki ofan af því að þetta er sennilega e...
28/06/2025

Stórglæsilegur hópur Hornfirðinga sem tók þátt í Öræfahlaupinu í dag 🤩
Við förum ekki ofan af því að þetta er sennilega eitt flottasta utanvegahlaup landsins þetta sumarið - en krefjandi hafa þeir örugglega verið kílómetrarnir 24 í Skaftafellsheiðinni með 1.000 m hækkun 👊
Guðrún Ása gerði sér svo lítið fyrir og náði 3.sæti kvenna - virkilega flottur árangur - til hamingju Guðrún og öll hin sem tókust á við braut dagsins.🥳

Address

Höfn
780

Telephone

+3548885979

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hlaupahópur Hornafjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hlaupahópur Hornafjarðar:

Share