UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur

UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur Ungmennafélag Grindavíkur

Það er nú ekki amalegt að vinna bæði Keflavík og Njarðvík sama daginn! Hér eru mörkin úr bikarleiknum hjá strákunum í gæ...
07/04/2026

Það er nú ekki amalegt að vinna bæði Keflavík og Njarðvík sama daginn! Hér eru mörkin úr bikarleiknum hjá strákunum í gær.

Allir á völlinn á morgun! Það er hægt að vera bara allan daginn á völlunum, er það ekki fín leið til að verja síðasta de...
05/04/2026

Allir á völlinn á morgun! Það er hægt að vera bara allan daginn á völlunum, er það ekki fín leið til að verja síðasta deginum í páskafríi?

Ath breyttur leikvöllur, verður inni.
Nágranna slagur á mánudag kl 13:00.
Grindavík-Keflavík í Mjólkurbikar karla.
Knatthúsi Hauka.
Miðasala á stubb.
https://stubb.is/events/n54Ndb

Boðið verður uppá einstaklingsæfingar í körfubolta í páskafríinu í Grindavík. Æfingarnar verða á skírdag og föstudaginn ...
31/03/2026

Boðið verður uppá einstaklingsæfingar í körfubolta í páskafríinu í Grindavík. Æfingarnar verða á skírdag og föstudaginn langa, kl. 10:30-11:30. Æfingarnar eru fyrir 7. bekk og eldri. Þjálfari verður Jóhann Árni.

Það þarf ekki að skrá sig og kostar ekkert, bara mæta. Íþróttahúsið verður mikið opið um páskana og hvetjum við alla til að koma í heimsókn og nýta sér aðstöðuna á opnunartíma.

Dagskráin í íþróttahúsinu yfir páskana:

Miðvikudagur 1. apríl: Opið kl. 16:00–20:00
Grindavík – Njarðvík (8-liða úrslit Bónus deildar karla) kl. 19:00

Skírdagur 2. apríl: Opið kl. 16:00–20:00

Föstudagurinn langi 3. apríl: Opið kl. 16:00–20:00

Laugardagur 4. apríl: Opið kl. 12:00–17:00
Grindavík – Valur (8-liða úrslit Bónus deildar kvenna) kl. 16:00

Páskadagur 5. apríl: Opið kl. 12:00–17:00

Annar í páskum 6. apríl: Opið kl. 12:00–17:00

(Við gerum ráð fyrir að það verði ca svona gott veður í Grindavík yfir páskana. Veðurspá birt án ábyrgðar eða athugunar.)

Það verður íþróttaskóli í boði fyrir leikskólaaldur á skírdag. Enginn kostnaður, engin skráning, ekkert vesen. Bara mæta...
31/03/2026

Það verður íþróttaskóli í boði fyrir leikskólaaldur á skírdag. Enginn kostnaður, engin skráning, ekkert vesen. Bara mæta og hafa gaman!

Grindavík á tvo fulltrúa í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur nú þátt í æfingamóti í Portúgal, þá Helga Hafstein Jóhan...
29/03/2026

Grindavík á tvo fulltrúa í U-19 ára landsliði Íslands sem tekur nú þátt í æfingamóti í Portúgal, þá Helga Hafstein Jóhannsson og Eystein Rúnarsson.

Ísland mætir þar Bandaríkjunum, Portúgal og Marokkó dagana 24. mars – 1. apríl.

Óli Björn var kjörinn formaður Körfuknattleiksdeild Grindavíkur á aðalfundi í gær. Ný stjórn mun starfa samhliða eldri s...
26/03/2026

Óli Björn var kjörinn formaður Körfuknattleiksdeild Grindavíkur á aðalfundi í gær. Ný stjórn mun starfa samhliða eldri stjórn fram yfir úrslitakeppni en í lok fundar var eftirfarandi ályktun lagð fyrir fundinn sem samþykkt var með lófataki.

„Lagt er til að nýkjörin stjórn og fráfarandi stjórn starfi samhliða út tímabilið með skýrri verkaskiptingu, þannig að fráfarandi stjórn annist áfram utanumhald vegna úrslitakeppni og lokahófs, en ný stjórn hefji undirbúning fyrir næsta tímabil. Stjórnirnar skulu hafa með sér gott samráð á þessu tímabili. Umboð fráfarandi stjórnar fellur niður tveimur vikum eftir síðasta leik tímabilsins.“

Eftir fund var svo stillt upp í "fanzone" í gamla salnum þar sem margar hendur unnu saman létt verk. Það er bara fulla ferð áfram!

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar UMFG fór fram í Gjánni í gær. Fundurinn var afar vel sóttur og var ný stjórn kosin til starfa. Óli Björn Björgvinsson var einn í framboði til formanns og var kjörinn með lófataki ásamt stjórn sem er fullskipuð. Fyrri stjórn mun þó starfa áfr...

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar UMFG verður haldin miðvikudaginn 25. mars næstkomandi, klukkan 18:00 í Gjánni.Dagskrá ...
18/03/2026

Aðalfundur körfuknattleiksdeildar UMFG verður haldin miðvikudaginn 25. mars næstkomandi, klukkan 18:00 í Gjánni.

Dagskrá fundarins

1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra
3. Kosning fundarritara
4. Skýrsla stjórnar – ársreikningur lagður fram til samþykktar
5. Kosning formanns og stjórnar - Tillaga stjórnar er að fresta kjöri formanns og stjórnar þar til tímabili er lokið og skal halda auka-aðalfund innan tveggja vikna frá seinasta leik meistaraflokka.
6. Önnur mál

Þau sem vilja bjóða sig fram til stjórnar eru beðin um að senda tölvupóst á [email protected].

Kær kveðja,
stjórn körfuknattleiksdeildar UMFG.

12/01/2026

Ósóttar jólapeysur!

Kæru Grindavíkingar og aðrir stuðningsmenn. Við minnum á að það liggja enn nokkrar ósóttar jólapeysur hjá okkur. Við hvetjum ykkur til að sækja peysurnar við fyrsta tækifæri.

Vá! Hvílíkt módel sem mætti í viðtal á Sýn Sport í gærkvöldi 🤩🤩Þau sem vilja vera jafn flott og Jóhann núna á aðventunni...
12/12/2025

Vá! Hvílíkt módel sem mætti í viðtal á Sýn Sport í gærkvöldi 🤩🤩

Þau sem vilja vera jafn flott og Jóhann núna á aðventunni ættu að panta sér Grindavíkurjólapeysur strax í dag, við afgreiðum næstu pantanir strax eftir helgi.

Peysurnar eru í vefverslun UMFG (slóð á hana í fyrstu athugasemd) og allur ágóðinn af sölunni rennur beinustu leið til deilda félagsins. Tvær flugur í einu höggi, geggjaðar jólapeysur og styrkur til deildanna okkar. Gæti þetta verið betra?

Dagur sjálfboðaliðans er í dag. Án sjálfboðaliða og þeirra framlags væri auðvitað ekkert starf í okkar deildum og fyrir ...
05/12/2025

Dagur sjálfboðaliðans er í dag. Án sjálfboðaliða og þeirra framlags væri auðvitað ekkert starf í okkar deildum og fyrir það erum við óendanlega þakklát. Takk kærlega fyrir allt sem þið gerið kæru sjálfboðaliðar, ykkar framlag er ómetanlegt.

Jólapeysurnar eru LOKSINS komnar í sölu!Kæru Grindvíkingar, það er okkur sönn ánægja að tilkynna að jólapeysurnar eru ko...
03/12/2025

Jólapeysurnar eru LOKSINS komnar í sölu!

Kæru Grindvíkingar, það er okkur sönn ánægja að tilkynna að jólapeysurnar eru komnar í sölu í vefversluninni okkar. Fyrir þá sem eru ekki jafn ævintýragjarnir í litavali og Bjössi þá erum við líka með aðra ögn dannaðari útgáfu, en þeir sem ætla sér að slá í gegn í komandi jólapartýum hljóta að velja þessa glæsilegu peysu, enda peysa sem eftir er tekið.

Allur ágóði af sölu jólapeysanna rennur óskiptur til deilda UMFG. Það verður hægt að nálgast pantanir í íþróttahúsinu á opnunartíma en einnig í Reykjavík og Reykjanesbæ eftir samkomulagi.

Linkur á vefverslunina í fyrstu athugasemd.

Address

Grindavík

Opening Hours

Monday 14:00 - 17:00
Tuesday 14:00 - 17:00
Wednesday 14:00 - 17:00
Thursday 14:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur:

Share