22/09/2026
Vekjum athygli á Virkniþingi eldra fólks sem verður þriðjudaginn 29.september í Íþróttaviku í Garðabæjar. Byrjum á hreyfingu í Miðgarði kl.10:30 þar sem boðið verður uppá 5 hreyfistöðvar og getur hver og einn þátttakandi valið sér að fara á tvær. Í boði verður göngufótbolti, píla, línudans, boccia og stólajóga. Engin skráning, bara mæta. Að lokinni hreyfingu verður boðið uppá súpu og kl.13:00 - 14:00 verður hægt að hlýða á tvo fyrirlestra um bættan lífsstíl. Áhrif hækkani aldurs á stoðkerfið - bestu forvörnina og Næring á efri árum- Hollara valið. Hlökkum til að hreyfa okkur með ykkur í Miðgarði.
Íþróttavika í Garðabæ fer fram 23.–30. september í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. . Við hvetjum þig til að taka þátt.