Gudni Gunnarsson

Gudni Gunnarsson Guðni hefur skrifað fjölmargar bækur um hugrækt og heilsurækt.

Guðni Gunnarsson veitir persónulega ráðgjöf í lífseflingu auk þess að halda námskeið í hagnýtri færni í heilsu- og lífsfærniráðgjöf þar sem fagleg þekking og persónuleg reynsla fléttast saman í kerfinu GlóMotion. Í meira en fjörutíu ár hefur Guðni lagt sig fram við þróun heilræktar, verið brautryðjandi einkaþjálfara og lífsráðgjafa á Íslandi. Árið 1982 stofnaði hann Vaxtarræktina hf., gaf út og ritstýrði tímaritinu Líkamsrækt og næring og var leiðandi í heildrænni þjálfun hugar og líkama hjá Mátt heilsurækt. Á árunum 1990–2006 bjó hann í Los Angeles þar sem hann þróaði Rope Yoga, nýtt kerfi sem sameinar hugrækt, hreyfingu, næringu og orkuvinnu. Þegar hann flutti heim árið 2006, stofnaði hann ásamt Guðlaugu Pétursdóttur Rope Yoga Setrið og þróuðu þau það áfram í GlóMotion, sem hefur verið kennt og miðlað síðan 2007, bæði til einstaklinga, hópa og í kennaranámi.

07/09/2026

Heilsu- og lífsfærniráðgjafanámið. Ferðalag fyrir þig. Spurningar og svör.

Guðni Gunnarsson og Gulla Pétursdóttir tóku saman spurningum um hvað verið er að kenna á námskeiðinu, sem varir í eitt ár. Velt upp spurningunni af hverju vegferðin byrjar alltaf hjá manni sjálfum og hvaða breytingar verða oftast ofaná hjá fólki, sem fer í gegnum “Sjö skref varanlegrar velsældar”.

Guðni talar meðal annars um:
🔑 Af hverju maður getur ekki gefið öðrum það sem maður á ekki sjálfur?
🔑 Hvernig heiðarleiki og heitbinding við sjálfan sig eru undirstaða allrar breytinga.
🔑 Af hverju við frestum, svíkjum og ljúgum að sjálfum okkur – og hvernig hægt er að byggja upp traust á ný.
🔑 „Allt sem við veitum athygli vex og dafnar“ – hvað það þýðir í daglegu lífi
🔑 Hvernig hann myndi svara þeim sem finna löngun til breytinga en eru ekki viss hvort þau eigi að stökkva á námið.

Heilsu- og Lífsfærniráðgjafanámið er ekki bara nám sem kennir aðferðir - námið er vegferð sem byrjar á því að vakna til vitundar um eigin hegðun, hugsanir og tilfinningar. Vegverðin endar með manneskju sem er tilbúin að leiða - fyrst sjálfa sig og svo aðra.

📍 Skólasetning: 12. september 2026
📖 Nánar um námið og skráningu: https://rys.is/product/lifsfaerni-radgjafarettindi/

---

⏱️ Efnisyfirlit
00:00 Inngangur
00:14 Hvað erum við í raun að kenna?
01:16 Af hverju byrjar þetta alltaf á manni sjálfum?
02:05 Hvaða breytingar sér Guðni hjá fólki sem lýkur náminu?
03:00 Af hverju svíkjum við sjálf okkur? Um heimild og traust
05:57 Er þetta þungt – eða getur þetta verið skemmtilegt?
07:04 Sjö skrefin útskýrð frá grunni
08:45 „Allt sem við veitum athygli vex og dafnar“
09:48 Ertu að hugsa um að taka skrefið en ekki viss?
11:56 Hvað hugsar þú mest um á hverjum degi?
14:16 Ákvörðunin sem breytir öllu

---

06/09/2026

Sunnudagshugvekjan 6. September, 2026 Allt sem þú veitir athygli ver og dafnar! Áhersla dagssins: Tilgangur er forsenda ástríðu... https://youtu.be/SCWy-XsC9HU

06/09/2026

KORMÁKUR ARTÚRSSON hefur notið góðs af Heilsu- og lífsfærniráðgjafanáminu. Hann vill meina að þáttakan í náminu hafi verið ein af allra bestu ákvörðunum sem hann hefur tekið um ævina - og er þá mikið sagt :)
Skoðaðu umsögn Kormáks og hugsaðu málið. Lífsfærninámið gæti værið það sem þú ert að leita eftir til að gera virkilega stóra breytingu á veruleika þínum - úr skorti yfir í velsæld.

Kynntu þér námið á https://rys.is/product/lifsfaerni-radgjafarettindi/

04/09/2026

NÖKKVI FJALAR (Nökkvi Fjalar Orrason) veltir fyrir sér nokkrum spurningum um gildi Lífsfærninámskeiðsins fyrir sig og vini sína. Taktu því rólega og skoðaðu hvað hann hefur að segja þér um það hvernig hægt er að líða betur og finna meiri gleði í lífinu.
Þú finnur hlekk á námskeiðið sem hefst 12. september í fyrstu athugasemdi. Kærleikur.

02/09/2026

Eiríkur P. Jörundsson segir okkur sögu sína á áleitinn hátt um Lífsráðgjafanámið og hvað gerðist í hans lífi.
Sagan hefst svona:
"Það var sérstök upplifun síðasta sumar að vakna á gjörgæslu Landsspítalans við Hringbraut eftir að hjarta þitt hætti um stund að slá og þú áttar þig á því að aðeins vel menntað og fært starfsfólk spítalans kom lífinu í gang á ný. Eða kannski öllu heldur, upplifunin verður sérstök þegar frá líður og maður áttar sig á því hvað gerðist. Eða frekar því sem ekki gerðist."

Lestu söguna áfram með því að fylgja þessum hlekk eða hlekk í fyrstu athugasemd.
https://rys.is/eirikur-jorundsson-ferdalagid-umsogn-radgjafanam/

Þau sem hafa lokið GlóMotion heilsu- og lífsfærniráðgjafanáminu segja sömu sögu aftur og aftur: þau fundu ekki bara nýtt...
01/09/2026

Þau sem hafa lokið GlóMotion heilsu- og lífsfærniráðgjafanáminu segja sömu sögu aftur og aftur: þau fundu ekki bara nýtt viðhorf til lífsins – þau fundu nýjan tilgang og nýjan starfsvettvang.

Þú getur orðið þinn eigin herra, unnið við það sem gefur þér orku og hjálpað öðrum á sama tíma og þú byggir upp þitt eigið líf.

📅 Skólasetning: laugardaginn 12. september 2026
📍 Skráning: https://rys.is/product/lifsfaerni-radgjafarettindi/

Address

Garðabær

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Gudni Gunnarsson posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Gudni Gunnarsson:

Shortcuts

Share