22/04/2026
Reiðskólasumarið 2026 🐴🐴🐴
Það er loksins komið að því!
Nú erum við að fara að auglýsa reiðnámskeiðin okkar fyrir sumarið 2026. Seifur, Smyrill, Garðar og allir hinir snillingarnir eru farin að undirbúa sig fyrir sumarið :-)
Í boði verða námskeið í júní, júlí og ágúst en vegna Landsmóts hestamanna á Hólum í Hjaltadal í Skagafirði 5.-11.júlí verður stutt pása gerð á reiðskólanum þá daga.
Eins og alltaf þá verðum við með litla hópa í sumar, eingöngu 10-12 pláss verða í boði á hverju námskeiði, en með því fyrirkomulagi náum við að sinna og kynnast hverjum og einum nemanda sem best. Ávallt er menntaður kennari/reiðkennari með hópnum hverju sinni ásamt aðstoðarfólki. Farið er daglega á hestbak i formi reiðtúra eða reiðkennslu inni í reiðhöll ásamt stuttri fræðslu um hestinn. Það verður mikið lagt upp úr gleði og að allir hafi gaman :-)
Eftirfarandi námskeið eru í boði sumarið 2026:
Námskeið 1 - 10. - 12. júní f.h. kl. 9 - 12 (3 dagar)
Námskeið 2 - 10. - 12. júní e.h. kl. 13 - 16 (3 dagar)
Námskeið 3 - 15. - 19. júní f.h. kl. 9 - 12 (4 dagar, ekki kennt 17.júní)
Námskeið 4 - 15. - 19. júní e.h. kl. 13 - 16 (4 dagar, ekki kennt 17.júní)
Námskeið 5 - 22 .- 26. júní f.h. kl. 9 - 12 *2 Örfá pláss
Námskeið 6 - 22. - 26. júní e.h. kl. 13 - 16 * FULLT
Námskeið 7 – 29júní. - 1. júlí f.h. kl. 9 – 12 (Polla- og pæjunámskeið) (3 dagar) * Örfá laus pláss
Námskeið 8 – 29.júní. - 1.júlí e.h. kl. 13 – 16 (3 dagar)
Lokað vikuna 6.-10.júlí
Námskeið 9 - 14. - 17. júlí f.h. kl. 9 – 12 (4 dagar)
Námskeið 10 - 14. - 17 júlí e.h. kl. 13 – 16 (4 dagar)
Námskeið 11 - 20. - 24. júlí f.h. kl. 9 - 12
Námskeið 12 - 20. - 24. júlí e.h. kl. 13 – 16 (Útreiðahópur)
Námskeið 13 - 27. - 31. júlí f.h. kl. 9 - 12
Námskeið 14 - 27. - 31. júlí e.h. kl. 13 – 16
Námskeið 15 – 4. - 7. ágúst f.h. kl.9 – 12 (4 dagar)
Námskeið 16 – 4. - 7. ágúst e.h. kl.13-16 (4 dagar) (Útreiðahópur)
Námskeið 17 – 10. - 14. ágúst f.h. kl.9-12 (Útreiðahópur)
Námskeið 18 – 10. - 13. ágúst e.h. kl.13-16 (Polla- og pæjunámskeið 4 dagar, mánud - fimmtud)
Verð fyrir 5 daga námskeið er 42.000 kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er 36.000 kr.
Verð fyrir 3 daga námskeið er 27.000 kr.
*Útreiðahópur. Eingöngu fyrir vana og mjög vana nemendur.
** Polla- og pæjunámskeið. Námskeið fyrir yngstu knapana (ca. 5-7 ára). Farið er á hestabak, í leiki og fleira hestatengt.
Vinsamlegast takið fram við bókun námskeiðsnúmer ásamt nafni og kennitölu barns og símanúmeri og tölvupóstfangi forráðamanns. Sendar verða út upplýsingar um greiðslu vegna námskeiðanna ca. 2-3 vikum áður en námskeiðið hefst.
Skráning á námskeið fer fram á tölvupóstfanginu [email protected].
Hlökkum til sumarsins!
Bestu kveðjur,
Reiðskólinn Hestalíf