Stjarnan körfubolti

Stjarnan körfubolti Fylgstu líka með okkur á Twitter . Handbók körfuknattleiksdeildar http://goo.gl/Q Handbók körfuknattleiksdeildar http://goo.gl/QQNC6H

16/06/2026

Hilmar Smári semur til tveggja ára

Stjarnan og Hilmar Smári hafa gert nýjan tveggja ára samning sem tryggir veru Hilmars Smára í Stjörnunni.

Hilmar Smári var í liði Stjörnunnar sem tryggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á þar síðasta tímabili, og kom svo aftur í upphafi þessa árs og hefur verið einn af okkar mikilvægustu leikmönnum.

“Það er okkur mikill fengur að Hilmar Smári semji við Stjörnuna. Hilmar Smári hefur sýnt og sannað hversu góður leikmaður hann er, góðir leikmenn eiga heima í Stjörnunni” Segir Einar Karl Birgisson formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar

“Eg skoðaði alla möguleika sem í boði voru, mér hefur liðið vel í Stjörnunni og því var valið á endanum ekki flókið. Hér er umgjörð og aðbúnaður fyrsta flokks. Her líður mér vel” segir Hilmar Smári

Til hamingju Hilmar Smári – Til hamingju Stjarnan

Skíni Stjarnan 💙

Stjarnan hefur gengið frá samningi við sjúkraþjálfarateymið sem hefur verið með okkur undanfarin ár, þau Agnesi Sjöfn Re...
12/06/2026

Stjarnan hefur gengið frá samningi við sjúkraþjálfarateymið sem hefur verið með okkur undanfarin ár, þau Agnesi Sjöfn Reynisdóttur, Hilmar Þór Hilmarsson og Jóhannes Má Marteinsson.
Þau hafa verið með meistaraflokk karla og kvenna og er það okkur mikilvægt að halda sama teymi áfram.

Eins munum við leggja áherslu á með þeim í vetur stuðning við yngri flokka iðkendur, til að fyrirbyggja og leiðbeina þeim í gegnum meiðsli.

Við allt utan um hald okkar á meistaraflokkunum og yngri flokkum þá spila sjúkraþjálfararnir stóra rullu, og erum við þakklát fyrir að hafa þetta teymi hjá Stjörnunni.

Skíni Stjarnan 💙

Stjarnan hefur samið við íþrótta-og hreyfifræðinginn Gunnar Má Másson um að vera áfram í teymi Stjörnunnar næsta leiktím...
10/06/2026

Stjarnan hefur samið við íþrótta-og hreyfifræðinginn Gunnar Má Másson um að vera áfram í teymi Stjörnunnar næsta leiktímabil.

Gunni kom til Stjörnunnar í úrslitakeppninni 2025 og spilaði stórt hlutverk í að Stjarnan vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Gunni hefur unnið náið með þjálfurum, leikmönnum, sjúkraþjálfurum og styrktarþjálfurum við utanumhald leikmanna liðs mfl.karla. Sú liðsheild og vinna sem unnin hefur verið síðustu ár er Stjörnunni mikilvæg í að vera alltaf í fremstu röð.

„Sú umgjörð sem sköpuð hefur verið í Garðabænum þar sem ungir uppaldir leikmenn fá að skína í bland við þá reynslumeiri er mér að skapi, og mér líður vel hjá Stjörnunni“, segir Gunnar Már og hlakkar til áframhaldandi samstarfs.

„Við erum mjög glöð að Gunni velji að vinna áfram með Stjörnunni. Starfið okkar síðustu ár kallar á áframhaldandi fagmennsku, og í því er Gunni mikilvægt púzzl!“, segir Einar Karl formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.

Þá er frábæru tímabili lokið hjá leikskóla og 5 ára hópunum okkar!Það voru yfir 90 iðkendur skráðir sem er mesti fjöldi ...
08/06/2026

Þá er frábæru tímabili lokið hjá leikskóla og 5 ára hópunum okkar!

Það voru yfir 90 iðkendur skráðir sem er mesti fjöldi sem hefur verið!

Í leikskólahópnum voru 3-4 ára krakkar, þar var áherslan á að kynna krökkunum fyrir körfubolta, efla hreyfiþroska, fara í skemmtilega leiki og fá jákvæða upplifun af því að mæta í skipulagt íþróttastarf. Það gekk virkilega vel og framfarirnar voru mjög miklar.

5 ára hópurinn stóð sig frábærlega og þar var enn meiri áhersla á körfubolta og fóru krakkarnir á þrjú mót. Það var virkilega gaman að sjá hve mikið krakkarnir bættu sig á milli móta og hversu vel þau skemmtu sér, allt eins og það á vera.

Elías Orri stýrði hópunum ásamt frábærum aðstoðarþjálfurum og munu þau halda áfram með báða hópa næsta haust. Við hlökkum til að sjá sem flest þegar æfingar hefjast í September!

SKÍNI STJARNAN 💙

Tímabilið 2025–2026 var frábært hjá yngri flokkum Stjörnunnar í körfubolta. Yngri flokkar félagsins fögnuðu fjölda Íslan...
06/06/2026

Tímabilið 2025–2026 var frábært hjá yngri flokkum Stjörnunnar í körfubolta. Yngri flokkar félagsins fögnuðu fjölda Íslands- og bikarmeistaratitla á tímabilinu og fjölmörg önnur lið náðu mjög góðum árangri ⛹️‍♂️🎉⛹️‍♀️

Árangur er þó ekki eingöngu mældur í verðlaunum. Hann snýst líka um menninguna sem við byggjum upp, gildin sem við stöndum fyrir og hvernig okkur tekst að skapa umhverfi þar sem iðkendur fá að vaxa, líða vel og vera hluti af sterkri liðsheild.

Við höfum áður sagt frá liðsheildarverkefni yngri flokka og nú hefur verið ákveðið að setja aukinn kraft í það verkefni. Auður Íris Ólafsdóttir mun leiða verkefnið áfram sem verkefnastjóri ásamt þeim Evu Wium og Ægi Þór Steinarssyni, sem verða áfram sýnilegar fyrirmyndir og kyndilberar verkefnisins.

Markmiðið er að efla liðsheild, samvinnu, ábyrgð og jákvæða menningu í yngri flokkum og gera gildi Stjörnunnar sýnileg í daglegu starfi, á æfingum, í leikjum og í samskiptum.

Starfið hefur aldrei verið fjölmennara, en iðkendur í yngri flokkum eru nú um 680 talsins. Drengir eru enn í meirihluta, en hlutfall stúlkna hefur heldur aukist og er nú nær 30%. Þar liggja áfram mikil tækifæri til framtíðar, ekki síst í því að efla enn frekar þátttöku stúlkna í körfunni.

Eins og áður hefur komið fram hefur Óskar Þór Þorsteinsson tekið við sem yfirþjálfari yngri flokka. Það er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu starfsins og mun hann vinna náið með Hlyni Bæringssyni, rekstrarstjóra deildarinnar, Barna- og unglingaráði og stjórn körfuknattleiksdeildarinnar.

Við erum stolt af árangrinum og þakklát öllum iðkendum, þjálfurum, foreldrum og sjálfboðaliðum fyrir þeirra framlag. Við hlökkum til næsta tímabils og áframhaldandi uppbyggingar í yngri flokkum Stjörnunnar.

Nánari upplýsingar um Barna- og unglingaráð Stjörnunnar, hlutverk þess og tilgang er hægt finna á heimasíðu félagsins.

Gerum gott betra, skíni Stjarnan ⭐💙🏀

Allra bestu sumarkveðjur,
Heimir Örn Sveinsson
formaður Barna- og unglingaráðs Stjörnunnar

Óskar Þór ráðinn yfirþjálfari yngri flokka 🤝Það er okkur sérlega ánægjulegt að segja frá því að Óskar Þór Þorsteinsson h...
04/06/2026

Óskar Þór ráðinn yfirþjálfari yngri flokka 🤝

Það er okkur sérlega ánægjulegt að segja frá því að Óskar Þór Þorsteinsson hefur verið ráðinn til starfa sem yfirþjálfari yngri flokka hjá körfuknattleiksdeild Stjörnunnar.

Óskar er sannkallaður Stjörnumaður, uppalinn hjá félaginu og þjálfaði áður yngri flokka Stjörnunnar með frábærum árangri. Síðustu tvö tímabil hefur hann starfað hjá ÍA, þar sem hann stýrði karlaliði félagsins upp í efstu deild í fyrsta sinn frá aldamótum.

Óskar mun vinna náið með Hlyni Bæringssyni, rekstrarstjóra deildarinnar, og saman munu þeir, í góðu samstarfi við Barna- og unglingaráð og stjórn körfuknattleiksdeildarinnar, vinna að því að styrkja starfið enn frekar.

Stjarnan er með eitt öflugasta og fjölmennasta yngri flokka starf landsins. Það er því bæði mikilvægt og tímabært að efla umgjörðina, fá fleiri hendur inn í starfið og halda áfram að gera gott betra.

Við bjóðum Óskar hjartanlega velkominn aftur heim í Stjörnuna og hlökkum til samstarfsins.

SKÍNI STJARNAN 💙

Í sumar verður Jakob Breki Ingason styrktarþjálfari körfuknattleiksdeildar  með snerpu og styrktaræfingar fyrir iðkendur...
02/06/2026

Í sumar verður Jakob Breki Ingason styrktarþjálfari körfuknattleiksdeildar með snerpu og styrktaræfingar fyrir iðkendur á aldrinum 12-16 ára.
Æft verður þrisvar í viku frá 15.júní - 22.júlí og 5.ágúst til 26.ágúst, fyrir þau sem ekki verða á svæðinu hluta sumar mun Jakob útvega prógram fyrir hvern og einn sem hægt er að gera sjálf.

Æft verður mánu, miðviku og föstudaga í lyftingasalnum í Miðgarði og Ásgarði en æfingar munu einnig færast út þegar veður leyfir.
Æfingar taka tillit til aldurs og reynslu hvers og eins.

12-13 ára (2013 og 14) kl 14:30
14-16 ára (2012 -2010) kl 16:00

Styrktar og snerpuþjálfun er gríðarlega mikilvæg fyrir allt íþróttafólk, við hvetjum okkar iðkendur til að nýta sumarið til að styrkja sig fyrir komandi tímabil.

Skráning er á Abler.

https://www.abler.io/shop/stjarnan/korfubolti

Sigurður Friðrik framlengir!Siddi hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og mun áfram vera aðstoðarþjálfari meistara...
01/06/2026

Sigurður Friðrik framlengir!

Siddi hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna og mun áfram vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna sem og stýra 1.deildar liðinu okkar kvk.

Siddi kom til okkar fyrir síðasta tímabil úr yngri flokka þjálfun og stimplaði sig vel inn í ÞG Verkhöllina.
Þar á hann heima áfram með okkur.

Til hamingju Stjarnan 💙 - Til hamingju Siddi

Skíni Stjarnan 💙

29/05/2026

Fyrsta spjall með Emil Barja, nýráðnum þjálfara mfl. KK! 💙✨

Stjarnan hefur ráðið Emil Barja sem aðalþjálfara meistaraflokks karla til tveggja ára 👏✍Emil kemur frá Haukum þar sem ha...
28/05/2026

Stjarnan hefur ráðið Emil Barja sem aðalþjálfara meistaraflokks karla til tveggja ára 👏✍

Emil kemur frá Haukum þar sem hann þjálfaði síðast meistaraflokk kvenna sem meðal annars urðu Íslandsmeistarar í fyrra.

Emil lék með mfl. karla hjá Haukum frá árinu 2007 til 2023 og spilaði öll sín ár með félaginu fyrir utan árið 2018-2019 þegar hann var spilaði með KR og varð Íslandsmeistari það ár.

„Ég er spenntur að koma til Stjörnunnar og taka við þessu nýja starfi. Stjarnan hefur byggt upp öflugt starf og leikmannahópurinn er sterkur og verður gaman að verða þátttakandi í framhaldinu“ sagði Emil Barja um nýja starfið.

„Við erum mjög ánægð með að fá Emil til okkar. Hann hefur náð áhugaverðum árangri á sínum þjálfaraferli og verður gaman að fá hann inn í okkar öfluga starf. Framtíðin er björt hjá okkur og bindum við miklar vonir við samstarfið“ sagði Einar Karl Birgisson formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.

Samhliða ráðningu Emils var gengið frá samningi við Inga Þór Steinþórsson um að verða áfram aðstoðarþjálfari liðsins. Inga Þór þarf ekki að kynna fyrir Stjörnufólki. Við
erum heppin að hafa Inga Þór áfram með okkur.

SKÍNI STJARNAN 💙

Address

Íþróttamiðstöðin Ásgarði
Garðabær
210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Stjarnan körfubolti posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Stjarnan körfubolti:

Share