20/06/2026
Í dag laugardag var Eskjumótið haldið á Byggðarholtsvelli í strekkingsvindi en það brá samt sem áður fyrir flottu golfi.
Sigurvegari í höggleik kvenna var Margrét Vera en hún sigraði Jónu Benný í bráðabana um sigurinn.
Í höggleik karla sigraði Aðalsteinn Ingi.
Sigurvegari í höggleik var Hildigunnur á 37 punktum Jóhann Stefáns var annar einnig á 37 punktum og í 3 sæti var Guðmundur Gunnarsson á 34 punktum
Næstur holu á 2/11 var Bjarni Kristjáns 67 cm hrá og á 8/17 varð Hildigunnur næst en hún var 1.54 m frá. Viljum við þakka öllum sem mættu og einnig þeim sem hjálpuðu við mótið.
Viljum við þakka Eskju sérstaklega fyrir þeirra framlag til mótsins.