Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum

Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum Sundlaug 25x12,5 2 heitir pottar,vaðlaug fyrir börn,barnvæn rennibraut,kaldur pottur,gufubað

29/07/2026

Góðan daginn
Næstkomandi mánudag 3 ágúst er frídagur verslunarmanna og verður helgaropnun þann dag. Opið frá kl 09:00 til 17:00

Kveðja
Starfsfólk ÍÞE

Taka tvö í fyrramálið 3 júlíÍþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.Þegar svona er þá m...
02/07/2026

Taka tvö í fyrramálið 3 júlí

Íþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.
Þegar svona er þá munum við missa hitann niður á öllum laugum/pottum hjá okkur.

Við ætlum samt að halda plani í fyrramálið og opna á venjulegum tíma. Við getum ekki lofað því að pottarnir verði nothæfir fyrst um sinn en sundlaugin verður klár á sínum stað en verður væntanlega 2-3 gráðum kaldari en hún er vön að vera.

Með bestu kveðju, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar

‼️ Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miðgarði, Útgarði og Tjarnarbraut á Egilsstöðum frá kl. 23:30 þann 2. júlí til 5:00 þann 3. júlí 2026.

⚡️ Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana.

ℹ️ Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof

https://www.mulathing.is/is/frettir/rafmagnsleysi-a-egilsstodum-25-26-juniÍþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verðu...
25/06/2026

https://www.mulathing.is/is/frettir/rafmagnsleysi-a-egilsstodum-25-26-juni

Íþróttamiðstöðin er inná þessu svæði sem verður rafmagnslaust næstu nótt.
Þegar svona er þá munum við missa hitann niður á öllum laugum/pottum hjá okkur.

Við ætlum samt að halda plani í fyrramálið og opna á venjulegum tíma. Við getum ekki lofað því að pottarnir verði nothæfir fyrst um sinn en sundlaugin verður klár á sínum stað en verður væntanlega 2-3 gráðum kaldari en hún er vön að vera.

Með bestu kveðju, starfsfólk Íþróttamiðstöðvarinnar

Vegna vinnu í dreifistöð verður rafmagnslaust í Miðgarði, Útgarði og Tjarnarbraut á Egilsstöðum frá klukkan 23:45 þann 25. júní til 6:00 þann 26. júní 2026

17/06/2026

Góðan daginn

Þjóðhátíðardagurinn 17 júní er sundlaug og rækt lokuð hjá okkur eins og alltaf.

Vegna veðurs færast hátíðarhöldin inní íþróttasalinn hjá okkur

Kveðja
Starfsfólk ÍÞE

12/06/2026

Góðan daginn

Saunan okkar er því miður biluð.
Unnið er að viðgerð ekki víst hvenær hún verður komin í lag aftur.

Kveðja
Starfsfólk ÍÞE

23/05/2026

24 maí og 25 maí er helgaropnun hjá okkur í sund og rækt frá 09:00 til 17:00

22/05/2026

Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum verður lokuð frá 2. júní og opnar aftur þann 8. júní

13/05/2026

Uppstigningardagur 14 maí á morgun helgaropnun hjá okkur í rækt og sund 09:00 til 17:00

Kveðja
Starfsfólk ÍÞE

Í dag var mætur maður borinn til grafar 🤍 Steini hóf störf hjá sundlauginni á Egilsstöðum fyrir aldamót og vann hjá okku...
04/05/2026

Í dag var mætur maður borinn til grafar 🤍

Steini hóf störf hjá sundlauginni á Egilsstöðum fyrir aldamót og vann hjá okkur allt til ársins 2021. Steini var mjúkur og góður maður en g*t látið í sér heyra þegar þess þurfti, sem svo sannarlega er fulkomin blanda í starfi sem þessu.
Steini var á heimavelli á þessum vinnustað þar sem mikið af fólki kom við og g*t oft verið mikið fjör. Hann var duglegur að stoppa við í kaffi eftir að hann hætti að vinna meðan hann hafði heilsu til.

Læt fylgja með eina skemmtilega sögu úr Íþróttahúsinu sem náði því að verða atriði á þorrablóti hér um árið.
Fyrir nokkrum árum var farið í mikla tiltekt í sundlaugarkjallaranum sem var orðinn yfirfullur af allsskonar drasli. Steini var fenginn með í þetta verkefni á landcruisernum og fengin stærsta kerran að láni sem áhaldahúsið á Egilsstöðum átti. Þegar búið var að fylla á kerruna var ákveðið að fá sér einn kaffibolla áður en lagt var á stað með allt góssið á ruslamóttökuna. Steini fékk tvo aðra starfsmenn til að koma með sér. Annar sat við hliðna á Steina og hinn sat í aftursætinu til þess að fylgjast með því að ekkert dytti nú af kerrunni. Steini keyrði mjög gætilega alla leiðina og fór sérstaklega varlega yfir hraðahindraninar. Þegar komið var á vigtina innfrá stóð þar starfsmaður sem var ekkert nema tvö stór augu og benti alltaf fyrir aftan bílinn. Þegar málið var kannað betur kom í ljós að það gleymdist að húkka kerrunni aftaní bílinn fyrir utan íþróttahúsið áður en lagt var af stað 😊

Við gerum fastlega ráð fyrir því að Steini hafi hlegið hátt af þessu þegar frá leið í það minnsta.

Elsku Tidda, Máni, Begga og fjölskyldur við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Minning um góðan mann lifir með okkur 🤍

Samúðarkveðjur frá starfsfólki Íþróttamiðstöðvarinnar á Egilsstöðum

Address

Tjarnarbraut 26, Egilsstöðum
Egilsstaðir
700

Opening Hours

Monday 06:30 - 21:30
Tuesday 06:30 - 21:30
Wednesday 06:30 - 21:30
Thursday 06:30 - 21:30
Friday 06:30 - 21:30
Saturday 09:00 - 17:00
Sunday 09:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Íþróttamiðstöðin á Egilsstöðum:

Shortcuts

Share