Borgarbyggð - Heilsueflandi samfélag

Borgarbyggð -  Heilsueflandi samfélag Allar upplýsingar um sundlaugar í Borgarbyggð má nálgast hér: http://borgarbyggd.is/thjonusta/ithrotta-og-aeskulydsmal/ithrottamidstodvar/

Í Borgarbyggð eru reknar þrjár sundlaugar.
Þorsteinsgötu 1, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. Athugið að opnunartími á Kleppjárnsreykjum og Varmalandi er ekki sá sami og er auglýstur hér. Nánair upplýsingar um opnunartíma má nálgast á heimsíðu Borgarbyggðar: http://borgarbyggd.is/thjonusta/ithrotta-og-aeskulydsmal/ithrottamidstodvar/

Hreyfing:
Rannsóknir staðfesta að hreyfing er einn af lykiláhri

faþáttum heilbrigðis á öllum æviskeiðum. Meginmarkmið verkefnisins Heilsueflandi samfélag í Borgarbyggð á sviði hreyfingar er að sporna gegn kyrrsetulíferni og stuðla að því að sem flestir íbúar, á öllum aldri, hreyfi sig í samræmi við ráðleggingar um hreyfingu. Það er gert með því að horfa til þeirra fjölmörgu þátta sem hafa áhrif á daglega hreyfingu, m.a. í tengslum við ferðamáta, vinnu og skóla, frítíma og heimilisverk. Embætti landlæknis er faglegur ráðgjafi verkefnisins um hreyfingu og birtir ráðleggingar um hreyfingu í samvinnu við helstu sérfræðinga á sviði hreyfingar hér á landi. Fjölbreytt framboð er af hreyfingu í Borgarbyggð. Tímatöflur íþróttahúsanna í Borgarbyggð má finna á http://www.umsb.is/is/page/timatoflur-ithrottahusa

Tímatafla sundlaugarinnar í Borgarnesi er á töflu í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Þar má nálgast upplýsingar um sundæfingar Skallagríms í Borgarnesi og sundleikfimi hjá Írisi Grönfeldt. Einnig eru upplýsingar um sundæfingar Skallagríms í Borgarnesi hér: http://skallagrimur.is/sund/

Sundæfingar Reykdæla á Kleppjárnsreykjum eru í tímatöflu íþróttahússins á Kleppjárnsreykjum sem sjá má hér: http://www.umsb.is/is/page/timatoflur-ithrottahusa

Upplýsingar um hlaupaæfingar hjá Flandra má nálgast á facebook síðu hópsins https://www.facebook.com/groups/Flandri/

Heilsuhof Reykholti er með dagskrá á heimasíðunni www.heilsuhof.is

Jóga hjá Möggu er á þriðjudögum kl.17 og 20 og fimmtudögum kl.17 frá 9.janúar 2017, sjá facebook síðu. Upplýsingar um Jóga hjá Erlu í Mávakletti er að finna hjá Guðlín Erlu Kristjánsdóttur. Upplýsingar um spinning ofl. í litla sal íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi má finna á töflu í íþróttahúsinu.

01/03/2023

Ný frétta- og upplýsingasíða fyrir íþróttir, tómstundir, forvarnir og heilsueflingu hefur litið dagsins ljós á samfélagsmiðlinum Facebook.

Til að einfalda boðleiðir og þægindi var ákveðið að búa til eina sameiginlega facebook síðu fyrir íþróttir, tómstundir, ...
28/02/2023

Til að einfalda boðleiðir og þægindi var ákveðið að búa til eina sameiginlega facebook síðu fyrir íþróttir, tómstundir, forvarnir og heilsueflingu í Borgarbyggð.
Væri gaman að þið sem fylgið okkur hér skellið like á nýju síðuna.

Viðeigandi að fyrsti póstur á nýrri síðu sé tileinkaður henni Gunnu Dan 🥰

Þá er kominn tími til að dusta rykið af þessu flotta verkefni Heilsueflandi Samfélag. Við byrjum með samstarfsverkefni m...
16/02/2023

Þá er kominn tími til að dusta rykið af þessu flotta verkefni Heilsueflandi Samfélag.
Við byrjum með samstarfsverkefni milli heilsueflandi og Menntaskóla Borgarfjarðar en í næstu viku munu nemendur MB bjóða íbúum upp á ókeypis leiðsögn í þreksalnum.
Frítt verður í salinn og öll velkomin.
Hvetjum ykkur til að nýta þetta tækifæri, sjáumst í salnum!

Heilsueflandi samfélag - Borgarbyggð og Menntaskóli Borgarfjarðar bjóða upp á tvo viðburði í næstu viku, 20 . febrúar og 24. febrúar nk.

Hægt er að lesa fréttina í heild sinni hér 👇
https://www.borgarbyggd.is/is/stjornsysla/stjornkerfi/frettir-ur-borgarbyggd/okeypis-leidsogn-i-threksalnum-i-bodi-borgarbyggdar-og-menntaskola-borgarfjardar

Virknidagatalið fyrir Jákvæðan júlí er komið á velvirk.is 😊
28/06/2021

Virknidagatalið fyrir Jákvæðan júlí er komið á velvirk.is 😊

Jákvæða virknidagatalið fyrir Glaðlegan júní frá Velvirk :)
01/06/2021

Jákvæða virknidagatalið fyrir Glaðlegan júní frá Velvirk :)

Í byrjun maí hófst samstarfsverkefnið Lýðheilsugöngur. Um var að ræða samstarf milli Heilsueflandi samfélags Borgarbyggð...
31/05/2021

Í byrjun maí hófst samstarfsverkefnið Lýðheilsugöngur. Um var að ræða samstarf milli Heilsueflandi samfélags Borgarbyggðar og Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs. Göngurnar voru fjórar og voru gengnar miðvikudaga í maí þar sem veðrið lék við þátttakendur í hverri göngu. Gengið var vítt um Borgarbyggð. Um Seleyri í gegnum Hafnarskóg, í Húsafelli meðfram Oddalindum og Hvítá, að Eldborg í gegnum kjarri vaxið Eldborgarhraun og að lokum á Stafholtsfjall í tungunni milli Norðurár og Hvítár.
Góð þátttaka var í allar göngurnar og fengu þátttakendur samfylgd og leiðsögn frá heimamönnum kunnugum staðháttum og létu vel af.
Við þökkum FFB fyrir faglegt og gott samstarf með góðum göngum.

Hamingjusamari og hlýlegri saman :)Jákvæða virknidagatalið fyrir maí frá Velvirk🤗
07/05/2021

Hamingjusamari og hlýlegri saman :)
Jákvæða virknidagatalið fyrir maí frá Velvirk🤗

Fyrsta Lýðheilsuganga samvinnuverkefnis Ferðafélags Borgarfjarðarhérðas og Heilsueflandi samfélags Borgarbyggðar var far...
06/05/2021

Fyrsta Lýðheilsuganga samvinnuverkefnis Ferðafélags Borgarfjarðarhérðas og Heilsueflandi samfélags Borgarbyggðar var farin í gær í góðu veðri. Genginn var s*x kílómetra hringur um Seleyri og Hafnarskóg og þátttakendur voru tæplega 50.
Næsta ganga verður í Húsafelli 12.maí kl 18.

Heilsueflandi samfélag Borgarbyggðar minnir hér létt á að Hjólað í vinnuna 2021 hefst á miðvikudaginn kemur, þann 5. maí...
03/05/2021

Heilsueflandi samfélag Borgarbyggðar minnir hér létt á að Hjólað í vinnuna 2021 hefst á miðvikudaginn kemur, þann 5. maí. Skráning er í fullum gangi.

Með því að taka þátt í þessu verkefni ertu ekki bara að bæta skemmtilegri hreyfingu við þína daglegu rútínu, heldur lækkar þú kolefnissporin í leiðinni og sparar þá peninga sem færu annars í eldsneyti. Það er semsagt ENGIN ástæða til að taka ekki þátt! Ef þú hefur ekki þegar skráð þig til leiks getur þú gert það núna á heimasíðu Hjólað í vinnuna.

Skráningarferlið er afar einfalt:
1. Farið er inná vef Hjólað í vinnuna, www.hjoladivinnuna.is
2. Smellt er á Innskráning efst í hægra horninu
3. Stofnaðu þinn eigin aðgang með því að skrá þig inn með Facebook eða búðu þér til notendanafn og lykilorð
4. Velja má á milli þess að stofna vinnustað (þarf að gera ef vinnustaðurinn finnst ekki í fellilista) eða stofna/ganga í lið (þá er búið að stofna vinnustaðinn)
5. Skráningu lokið

Hægt er að nálgast ítarlegar skráningarleiðbeiningar inná vef Hjólað í vinnuna og einnig er þar að finna leiðbeiningar á ensku í skjali neðst á síðunni. Ef upp koma vandamál við skráningu er hægt að hafa samband við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í síma 514-4000 eða senda tölvupóst á netfangið [email protected].

Um verkefnið: Verkefnið Hjólað í vinnuna fer fram 5.-25. maí nk. og skráning eru í fullum gangi. Hjólað í vinnuna er fyrir marga vorboðinn ljúfi. Þrátt fyrir að enn ríki töluvert sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu þá er aldrei mikilvægara en núa að huga vel að heilsunni og sinni daglegu hreyfingu. Fyrirtæki og stofnanir um allt land geta nú farið að huga að því að skrá vinnustaðinn til leiks og hvetja þannig allt starfsfólk til að vera með þrátt fyrir að fólk vinni jafnvel heiman frá sér. Mikilvægt er fyrir vinnustaði landsins að huga að starfsandanum á þessum fordæmalausu tímum og er verkefnið Hjólað í vinnuna góð leið til þess að hressa upp á stemninguna og þjappa hópnum saman, en auðvitað á sama tíma að virða 2 metra fjarlægðarmörkin. Sami háttur verður hafður á og í fyrra að fyrir þá sem vinna heima að er úrtfærslan einföld. Fólk gengur, hjólar eða ferðast með öðrum virkum hætti þá vegalengd er samsvarar vegalengd til og frá vinnu og skráir þá kílómetra inn í kerfið. Hægt er að byrja eða enda vinnudaginn á því að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Markmið verkefnisins er að huga að daglegri hreyfingu ásamt því að vekja athygli á virkum ferðamáta og eru hjólreiðar bæði virkur og umhverfisvænn ferðamáti. Hjólreiðar eru frábær útivist, hreyfing og líkamsrækt. Munum bara að halda góðri fjarlægð á milli annarra hjólreiðarmanna/-kvenna

Íþrótta- og Ólympíusamband Ísland hvetur landsmenn til að hreyfa sig daglega og ekki síst taka þátt í þessu skemmtilega verkefni sem Hjólað í vinnuna er.

Rafhlaupahjól telja ekki með28. 04 2021Allur virkur ferðamáti telur með í Hjólað í vinnuna. Hvort sem þú velur að hjóla, hlaupa, ganga, fara á línuskautum eða hjólabretti, þá telur það með. Fyrirspurnir hafa borist vegna rafhlaupahjóla og þó svo að sá ferðamáti sé hagkv...

Nú í byrjun maí fer af stað samstarfsverkefnið Lýðheilsugöngur milli Heilsueflandi samfélags Borgarbyggðar og nýstofnaðs...
29/04/2021

Nú í byrjun maí fer af stað samstarfsverkefnið Lýðheilsugöngur milli Heilsueflandi samfélags Borgarbyggðar og nýstofnaðs Ferðafélags Borgarfjarðarhérðas. Leitast verður við að hafa göngurnar á færi sem flestra og gengið á mismunandi stöðum í sveitarfélaginu. Göngurnar verða í boði alla miðvikudaga í maí kl: 18:00 og taka um eina og hálfa klukkustund. Frítt er í allar göngurnar.

Fyrsta gangan verður 5. maí þar sem stefnan er tekin á Seleyri. Upphafsstaður göngu er við bílastæði gengt Borgarfjarðarbraut. Gengið verður í gegnum Hafnarskóg og til baka eftir ströndinni að Seyleyri. Síðari göngur verða auglýstar með vikufyrirvara. Allar göngur verða leiddar af stjórnarmönnum í FFB.

Gleðilega aðventu og verum dugleg að hreyfa okkur!
29/11/2020

Gleðilega aðventu og verum dugleg að hreyfa okkur!

Address

Þorsteinsgata 1
Borgarnes
310

Opening Hours

Monday 06:00 - 22:00
Tuesday 06:00 - 22:00
Wednesday 06:00 - 22:00
Thursday 06:00 - 22:00
Friday 06:00 - 22:00
Saturday 09:00 - 18:00
Sunday 09:00 - 18:00

Telephone

+3544337140

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Borgarbyggð - Heilsueflandi samfélag posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category