10/05/2025
Við gáfum til kynna fyrir nokkrum vikum að völlurinn mundi opna 10. maí og við það stöndum við. Síðustu daga hafa ötulustu menn klúbbsins staðið í slætti og að gera allt klárt eins og þar stendur. Hér fylgja með myndir af hluta félagsmanna sem mættu í morgun svo hægt væri að standa við opnun vallarins þrátt fyrir kuldakast síðustu daga. Eins og þeir sem þekkja Glannavöll vita, eru allar brautir þurrar en vatn þar sem það má vera og gerir völlinn bara meiri áskorun. Spáin, ef hún gengur eftir, er hreint frábær. Þegar líður á næstu viku gerir spáin ráð fyrir "rauðum" kortum sem þýðir að hitinn getur farið í 18-20°. Verið því velkomin á Glannavöll í sumar og njótið golfsumarsins hjá okkur.