02/12/2025
Hvað gefur lífi þínu gildi?
Er það að hafa góða heilsa, eiga gæðastundir með vinum og fjölskyldu, vera í góðu jafnvægi, vera vel hvíldur, nærast á góðum mat, gefa sér tíma til að sinna áhugamálum, hafa næga orku til að takast á við krefjandi verkefni, ná árangri í lífinu og njóta þess að safna skemmtilegum minningum?
Flest viljum við lifa hamingjuríku og innihaldsríku lífi eins og kostur er. Hvað svo sem dynur á okkur í lífinu þá gerir það okkur öllum gott að átta okkur á því hvað kemur okkur í gott skap og veitir ánægju, hamingju og lífsfyllingu og leita leiða til að gera meira af slíku. Að horfa á jákvæðu hliðarnar frekar en þær neikvæðu breytir miklu fyrir andlega líðan. Bjartsýni og jákvætt viðhorf gerir virkilega gæfumuninn ❤️
Þó að margir ætli sér að setja heilsuna í fyrsta sæti gengur það ekki alltaf eftir. En hvort sem þú ert nú þegar á beinu brautinni eða langar að gera breytingar til hins betra þá er ekki úr vegi að setja sér ný markmið fyrir nýtt ár. Það er aldrei of seint að byrja að rækta heilsuna og þú finnur fljótt muninn þegar þú tekur málin föstum tökum ❤️