04/09/2026
💪 *Warrior Ágúst Mánaðar* 🔥
Sindri Þór Guðmundsson Sindri Þór Guðmundsson
Sindri er búinn að vera hjá okkur í TFW í *eitt ár* og á þeim tíma hefur hann heldur betur sett sitt mark á hópinn okkar.
Það sem einkennir Sindra sérstaklega er hvernig hann kemur fram við fólkið í kringum sig. Af einlægni hefur hann örugglega náð að *hrósa, hvetja eða peppa nánast alla sem hafa æft með honum* .
Hann mætir ekki bara til að gera sjálfan sig betri — hann hjálpar líka öðrum að verða betri.
Sindri vill læra, spyr, tekur leiðbeiningum og leggur sig fram við að bæta sig. Og það hefur hann svo sannarlega gert á þessu fyrsta ári.
Í tímum er hann *ALL IN* — hvort sem það snýr að ákefð, viðhorfi, stemningu eða áhuganum á að læra meira.
Við erum ótrúlega stolt af því sem Sindri hefur áorkað á þessu eina ári, en ekki síður stolt af því *hvernig hann kemur fram við fólkið í kringum sig.*
Innilega til hamingju með *Warrior ágúst mánaðar, Sindri* ! 🔥