Hlíðarfjall Akureyri

Hlíðarfjall Akureyri Hlíðarfjall er sannkölluð útivistarparadís jafnt að sumri sem vetri!
❤️🚴‍♂️💙🎿💚🏃‍♂️
(616)

Sumarið komið á fullt í Hlíðarfjalli – Tvær nýjar snjóbyssur bætast í flotann 🎉Nú eru sumarverkefnin öll komin á fullt h...
10/06/2026

Sumarið komið á fullt í Hlíðarfjalli – Tvær nýjar snjóbyssur bætast í flotann 🎉

Nú eru sumarverkefnin öll komin á fullt hjá okkur í fjallinu og á nógu að taka. Fjölþætt viðhaldsvinna fer fram í sumar á lyftum og öðrum búnaði, nýjar snjógirðingar verða reistar og eldri lagfærðar, ljós verða áfram uppfærð og svo auðvitað sumaropnunin okkar frá byrjun júlí fram í byrjun september.

Í vikunni var mikið gleðiefni þegar við fengum afhentar tvær nýjar snjóbyssur sem gjöf frá Vinum Hlíðarfjalls. Snjóbyssurnar eru frá MND Snow (Sufag) eins og eldri byssur svæðisins en þessar tvær nýju eru af gerðinni Peak+ og eru aðeins stærri en þær eldri. Peak+ snjóbyssurnar geta kastað snjó lengra, nota minna rafmagn og eru hljóðlátari, en aðallega eiga þær að framleiða betri og meiri snjó. Það verður því gríðarlega spennandi að byrja næsta vetur með þessari frábæru viðbót og þökkum við Vinum Hlíðarfjalls kærlega fyrir.

Önnur gleðitíðindi eru sú að gámarnir sem hýstu skíðaleiguna eru nú byrjaðir að tínast í burtu einn af öðrum og strax erum við farin að sjá hversu mikið þetta opnar svæðið. Mikil hugmyndavinna er í gangi hvernig við munum nýta flötina vestan við Skíðastaði sem best en þar er t.d. verið að skoða að setja upp leiktæki og grill/nestisskýli. Allavega verður nóg pláss til að sitja úti og sleikja sólina þarna næsta vetur 😍

Að lokum langar okkur að biðla til hjólafólks að fara ekki í hjólaleiðirnar uppí fjalli strax þar sem þær eru allar enn mjög blautar og vinna er hafin við að laga þær til fyrir sumaropnun. En um leið og við opnum svæðið þá eru auðvitað allir velkomnir að nýta það hvenar sem er sólarhringsins.

Hlökkum til að sjá sem flesta í fjallinu í sumar 😊

Vortiltektin heldur áfram, nú eru nokkur borð og sófi sem má hirða fyrir framan hótelið ☺️ Fyrstur kemur fyrstur fær 🙌🏻
22/05/2026

Vortiltektin heldur áfram, nú eru nokkur borð og sófi sem má hirða fyrir framan hótelið ☺️ Fyrstur kemur fyrstur fær 🙌🏻

21/05/2026

Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í 14 tuttugu feta gáma sem hafa verið nýttir fyrir Skíðaleigu í Hlíðarfjalli

Þó það sé ennþá slatta snjór í fjallinu þá er sumarið handan við hornið ☺️Í fyrra breyttum við opnunartíma fjallsins í s...
20/05/2026

Þó það sé ennþá slatta snjór í fjallinu þá er sumarið handan við hornið ☺️

Í fyrra breyttum við opnunartíma fjallsins í samráði við Hjólreiðafélag Akureyrar sem reyndist virkilega vel og voru nánast allir opnunardagar vel nýttir, það verður því sama fyrirkomulag á opnun í sumar.

Stefnt er á að sumaropnun verði frá 4. júlí til 5. september. Á tímabilinu verður hægt að nýta Fjarkann, neðri stólalyftuna okkar, til að koma sér upp fjallið hvort sem það er til að njóta hjólagarðsins eða til að ganga um fjallið og njóta útsýnisins. Ekki er stefnt á að opna Fjallkonu í sumar vegna viðhaldsvinnu.

Opnunartími:
Þriðjudögum og fimmtudögum frá 16:30-20:30
Laugardögum frá 10-16.

Auk þessa verða þrjár helgar sem verður opið frá fimmtudegi til sunnudags, þær eru eftirtaldar:
16 - 19 júlí (Enduro og Downhill keppnishelgi)
30 júlí - 2 ágúst (Verslunarmannahelgin)
27 - 30 ágúst (Downhill keppnishelgi)

Opnunardagsetning er birt með fyrirvara, veðrið ræður auðvitað öllu um það hvort við náum að opna 4. júlí, en við vonum að júní verði hlýr og góður !

Hlökkum mikið til að sjá ykkur í Hlíðarfjalli í sumar 🥰

Tiltektin heldur áfram, nú er slatti af gömlum stólum sem má hirða fyrir utan hótelið, fyrstur kemur fyrstur fær ☺️
20/05/2026

Tiltektin heldur áfram, nú er slatti af gömlum stólum sem má hirða fyrir utan hótelið, fyrstur kemur fyrstur fær ☺️

Vortiltekt í fjallinu og fyrir utan Skíðastaði er slatti af gömlum skíðum og haugur af skíðastöfum, ef einhver getur nýt...
18/05/2026

Vortiltekt í fjallinu og fyrir utan Skíðastaði er slatti af gömlum skíðum og haugur af skíðastöfum, ef einhver getur nýtt þetta er velkomið að koma og hirða ☺️

Sleðaleið nú opin uppá Hlíðarfjall Nú þegar almenn opnun á skíðasvæðinu er búin þá ætlum við eins og síðustu ár að gefa ...
30/04/2026

Sleðaleið nú opin uppá Hlíðarfjall

Nú þegar almenn opnun á skíðasvæðinu er búin þá ætlum við eins og síðustu ár að gefa leyfi til aksturs á snjósleðum í gegnum svæðið til að komast uppá Hlíðarfjall.

Eins og áður þá er þetta aðeins rauðmerkta leiðin á meðfylgjandi mynd sem má keyra upp og niður. Byrjar við Fjarkann, beint upp í Dalinn og svo ofan við Fjallkonuna út í átt að Mannshrygg. Sneiðingurinn uppá topp er ekki ruddur svo það þarf að stinga sér beint upp brekkuna þar í kverkinni.

Áfram verða skíðaæfingar í brekkunum svo allur annar akstur á svæðinu er stranglega bannaður.

Biðjum allt sleðafólk til að ganga vel um svæðið, sýna tillitsemi og auðvitað fara varlega 🙂

TAKK FYRIR VETURINN 2025/2026Á laugardaginn síðasta lauk tímabilinu hjá okkur í fjallinu þennan veturinn þegar lokadagur...
29/04/2026

TAKK FYRIR VETURINN 2025/2026

Á laugardaginn síðasta lauk tímabilinu hjá okkur í fjallinu þennan veturinn þegar lokadagur Andrésar Andarleikanna fór fram 😍

Veturinn hjá okkur byrjaði frábærlega þar sem við opnuðum þann 4. des fyrir almenning. Fyrir það höfðu verið æfingar á skíðagöngusvæðinu frá 28. okt og alpagreinar og brettadeild byrjuðu að æfa 17. nóv. Fram að jólum voru frábærar aðstæður en svo kom jólahlákan mikla og urðum við að loka þar til 9. jan. Eftir það gekk vel þrátt fyrir lítinn snjó í janúar og febrúar en svo í mars kom loksins snjósending sem skilaði okkur frábærum páskum, þeim stærstu til þessa í gestafjölda. Svo til að kóróna tímabilið voru Andrésar andarleikarnir alveg æðislegir, 50 ára afmæli leikanna og met þátttaka með yfir 1100 keppendur.

Það var mikil vinna lögð í að halda svæðinu opnu á köflum og það voru 27 dagar sem snjóframleiðsla var keyrð. Á endanum náðum við 113 opnunardögum sem er með því meira á síðustu árum og gestafjöldi náði tæpum 86 þúsund 🙌🏻

Ennþá er talsverður snjór á svæðinu, skíðafélagið verður með æfingar áfram og á skíðagöngusvæði verður troðið áfram á mánudögum og föstudögum meðan aðstæður leyfa.

Hlökkum svo til að sjá sem flesta í fjallinu í sumar og auðvitað að taka á móti ykkur öllum aftur þegar veturinn 2026/2027 gengur í garð ⛷️🏂

Takk fyrir okkur 🤍

☀️ Laugardagur 25. apríl 2026 ☀️⏰ Opið 07:00–16:00 ⛷️🏂🌡️ -2°C, logn og mildur vindur⸻⚠️Andrésar Andar leikarnir eru í fu...
25/04/2026

☀️ Laugardagur 25. apríl 2026 ☀️
⏰ Opið 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ -2°C, logn og mildur vindur

⚠️Andrésar Andar leikarnir eru í fullum gangi og Í dag fara fram keppnir á fjallinu. Vinsamlegast virðið allar lokanir á meðan viðburðir standa yfir.
Ákveðnar brekkur og svæði eru frátekin fyrir keppendur og starfsfólk, svo við biðjum gesti vinsamlegast að fylgja merkingum og fyrirmælum starfsfólks og forðast lokuð svæði.

Neðra svæði:
• Lyftur: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut og Töfrateppi
• Troðnar brekkur: Auður, Töfrateppi, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Efra svæði:
• Lyftur: Strompur
• Troðnar brekkur: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki
Gönguskíði (XC):
• 7 km
• 10 km
🎟️ Kaupið miða á netinu og sleppið röðinni:
hlidarfjall.skiperformance.com

☀️ Saturday, April 25th, 2026 ☀️
⏰ Open 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ -2°C, calm and mild wind

⚠️ Today we are hosting competitions on the mountain. Please respect all closures while events are running.
Certain slopes and areas are reserved for competitors and staff, so we kindly ask guests to follow signage and staff instructions and avoid closed areas.

Lower area:
• Lifts: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut, and Magic Carpet
• Groomed slopes: Auður, Magic Carpet, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Upper area:
• Lifts: Strompur
• Groomed slopes: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki Upper
Cross-country (XC):
• 7 km.
• 10 km
🎟️ Buy your ticket online and skip the line:
hlidarfjall.skiperformance.com

24/04/2026

☀️ Föstudagur 24. apríl 2026 ☀️
⏰ Opið 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ 0°C, logn og mildur vindur

⚠️Andrésar Andar leikarnir eru í fullum gangi og Í dag fara fram keppnir á fjallinu. Vinsamlegast virðið allar lokanir á meðan viðburðir standa yfir.
Ákveðnar brekkur og svæði eru frátekin fyrir keppendur og starfsfólk, svo við biðjum gesti vinsamlegast að fylgja merkingum og fyrirmælum starfsfólks og forðast lokuð svæði.

🎉 Næstu tvo daga verður fjallið fullt af lífi með keppnum um allt svæðið.
Allar lyftur eru í gangi frá deginum í dag og fram á laugardag, svo það er nóg pláss fyrir alla, hvort sem þú ert að keppa eða bara njóta dagsins.
Komdu upp eftir, njóttu stemningarinnar og vertu hluti af þessu sérstaka tilefni 🙌

Neðra svæði:
• Lyftur: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut og Töfrateppi
• Troðnar brekkur: Auður, Töfrateppi, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Efra svæði:
• Lyftur: Strompur og Fjallkona
• Troðnar brekkur: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki efri,
Gönguskíði (XC):
• 7 km
• 10 km

🎟️ Kaupið miða á netinu og sleppið röðinni:
hlidarfjall.skiperformance.com

☀️ Fimmtudagur, April 24th, 2026 ☀️
⏰ Open 07:00–16:00 ⛷️🏂
🌡️ 0°C, calm and mild wind

⚠️ Today we are hosting competitions on the mountain. Please respect all closures while events are running.
Certain slopes and areas are reserved for competitors and staff, so we kindly ask guests to follow signage and staff instructions and avoid closed areas.

🎉 Over the next two days, the mountain will be full of life with competitions taking place all around the resort.
We start with absolutely perfect weather — clear skies, sunshine from morning to evening, and ideal spring conditions 🌤️⛷️🏂
All lifts are running from today through Saturday, so there is plenty of space for everyone, whether you are competing or just enjoying the day.
Come up, enjoy the atmosphere, and be part of this special occasion 🙌

Lower area:
• Lifts: Fjarki, Hólabraut, Hjallabraut, Auður, Skálabraut, and Magic Carpet
• Groomed slopes: Auður, Magic Carpet, Hólabraut, Hjallabraut, Andrés, Rennslið
Upper area:
• Lifts: Strompur and Fjallkona
• Groomed slopes: Dalurinn, Suðurbakki, Strompur, Neyðarbraut, Norðurbakki, Norðurbakki Upper
Cross-country (XC):
• 7 km.
• 10 km
🎟️ Buy your ticket online and skip the line:
hlidarfjall.skiperformance.com

Address

Hlíðarfjallsvegur
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hlíðarfjall Akureyri posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hlíðarfjall Akureyri:

Share