28/08/2022
Fulltrúar Team Fuzz stóðu sig með stakri prýði á Íslandsmótinu í frisbígolfi, sem fram fór um helgina og við óskum þeim að sjálfsögðu innilega til hamingju með árangurinn! 🎉
Trausti Freyr () tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í flokki ungmenna, 18 ára og yngri, sem kemur mögulega fáum á óvart þar sem hann hefur spilað einstaklega vel þetta sumarið og sigurinn því virkilega verðskuldaður! 🏆🇮🇸
Arnþór Gylfi (.discgolf) endaði í 5. sæti í opnum flokki, sem verður að teljast ansi gott í sterkasta flokki mótsins! 😎