15/08/2026
Keppnin í dag heppnaðist vel og viljum við þakka öllum keppendum, sjálfboðaliðum og áhorfendum fyrir frábæran dag.
Í lok dags voru verðlaun afhent Íslandsmeisturum í motocross og óskum við þeim innilega til hamingju með glæsilegan árangur. 🏆🇮🇸
Boðið var upp á köku í lok dags þar sem klúbburinn okkar fagnar 30 ára afmæli á árinu.
——
Þriðja umferð Íslandsmótsins í mótaröðinni Enduro fyrir alla fer fram á morgun sunnudaginn 16.ágúst.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Kveikt verður á grillinu i lok verðlaunaafhendingar 🎉🍔
Dagskrá:
11:00 Mæting keppenda
11:00 - 12:00 Skoðun
12:00 Keppendafundur / afhending tímatökubólu
13:00 Skoðunarhringur
13:45 Röðun á ráslínu
14:00 Keppni hefst
16:00 Verðlaunafhending