02/04/2020
Það er okkur ansi þungbært að tilkynna að vegna utanaðkomandi aðstæðna sjáum við okkur ekki fært um að halda Iceland Winter Games þetta árið. Covid-19 faraldurinn og samkomubannið gerir það að verkum að því miður verður ekki hægt að halda hátíðina þetta árið. Við þökkum öllum viðburðahöldurum og styrktaraðilum fyrir samstarfið og hlökkum til að starfa áfram með þeim á næstu árum.
Við getum þó glatt ykkur með því að þið getið strax tekið helgina 19-21 mars 2021 frá því við erum strax farin að plana næsta ár og hlökkum mikið til að gefa út meiri upplýsingar þegar nær dregur 😊
Vonum að allir fari vel með sig á þessum erfiðu og skrítnu tímum og fari eftir fyrirmælum Almannavarna, sjáumst hress í mars 2021 😊