13/05/2026
❤️ Félagi í Æskunni ❤️
Það að vera félagi í Ungmennafélaginu Æskunni þýðir ekki endilega að þú sért iðkandi eða takir virkan þátt í starfinu. Með félagsaðild ert þú fyrst og fremst að styðja við mikilvægt starf í heimabyggð 🥰
Félagsgjöldin eru send út í fjáröflunarskyni til að styrkja starfsemi félagsins og hjálpa okkur að halda áfram að bjóða upp á öflugt og aðgengilegt starf fyrir samfélagið allt.
Greiðsluseðlarnir birtast sem „félagsgjöld“ í heimabanka þar sem það er það fyrirkomulag sem er í boði hjá bankakerfinu og því var ekki mögulegt að senda þetta út sem valgreiðslu.
Félagsaðildin og stuðningurinn eru þó að sjálfsögðu alveg valfrjáls 😊
Það hjálpar félaginu einnig að hafa sem flesta skráða félaga, meðal annars þegar kemur að úthlutunum og stuðningi við íþróttastarf, t.d. lottótekjum 💚
Hægt er að fela kröfuna í heimabanka og ef hún er ekki greidd fellur hún sjálfkrafa út 1. júlí næstkomandi. Þó gjalddagi sé 15. maí leggjast engin gjöld eða vanskilakostnaður á kröfuna.
Takk fyrir stuðninginn og samfylgdina 💚