Lyftingadeild KA

Lyftingadeild KA Lyftingadeild KA var stofnuð 24.mars 2022.

Markmið deildarinnar er að sameina undir einu þaki lyftingafólk sem keppir og æfir í kraft- og ólympískum lyftingum á Akureyri.
Í upphafi mun deildin hafa aðstöðu sína við Tryggvabraut.

Laugardaginn 23.maí fer fram byrjendamót í kraftlyftingum í íþróttahöllini á Akureyri! 28 keppendur eru skraðir til leik...
13/05/2026

Laugardaginn 23.maí fer fram byrjendamót í kraftlyftingum í íþróttahöllini á Akureyri!
28 keppendur eru skraðir til leiks og hefst mótið kl 12:45
Hlökkum til að sjá ykkur!

💥RISA LYFTINGAHELGI Á AKUREYRI 💥Laugardagur 23.maí - Byrjendamót í kraftlyftingumSunnudagur 24.maí - Sumarmót LSÍ og KA ...
10/05/2026

💥RISA LYFTINGAHELGI Á AKUREYRI 💥
Laugardagur 23.maí - Byrjendamót í kraftlyftingum
Sunnudagur 24.maí - Sumarmót LSÍ og KA í ólympískum lyftingum.
Mótin eru haldin í góðu samstarfi við frábæra styrktaraðila og verður keppnispallurinn í stóra salnum í íþróttahöllinni við skólastíg.

Kynnum nýjan þjálfara: Sigurbjörn BjarnasonÞað er mikill fengur fyrir deildina að fá Sigurbjörn Bjarnason (Sibba) til li...
10/02/2026

Kynnum nýjan þjálfara: Sigurbjörn Bjarnason

Það er mikill fengur fyrir deildina að fá Sigurbjörn Bjarnason (Sibba) til liðs við sig. Sigurbjörn er þrítugur tveggja barna faðir, nýgiftur og alinn upp í sveit. Sibbi flutti ungur að heiman til að reyna fyrir sér í fótbolta. Hann segist sjálfur hafa verið í frekar slöku standi sem ungur leikmaður, fékk nóg af því og varð hreinlega heltekinn af styrktarþjálfun.

Sá áhugi leiddi hann út í kraftlyftingar, sem hann stundaði af krafti í rúm fimm ár, og síðar í faglega þjálfun. Hann er með Diploma í styrktarþjálfun (S&C) frá Keili og er Level 1 og 2 vottaður í Training for Warriors (TFW). Sem stendur leggur hann stund á háskólanám í kennarafræðum.

Reynsla sem telur

Sibbi hefur þjálfað stöðugt síðustu fimm ár; fyrst sem styrktarþjálfari hjá yngri flokkum KA í handbolta og hjá TFW Akureyri. Síðastliðin þrjú og hálft ár hefur hann borið ábyrgð á því að leikmenn meistaraflokks Þór/KA séu í toppstandi til að keppa við þau bestu á landinu.

Sibbi brennur fyrir öllu sem viðkemur heilsu og hefur prófað flest – allt frá því að ganga berfættur á fjöll yfir í að teipa fyrir munninn í svefni!

„Mín uppáhalds lyfta er klárlega hnébeygjan. Það er ekki til sanngjarnari dómari á getu en hnébeygjan,“ segir Sigurbjörn léttur í bragði.

LOKSNS LOKSINS!! Unglinga tímar í lyftingum!í Tímunum er farið í helstu atriði almennrar styrktarþjálfunar með áherslu á...
01/02/2026

LOKSNS LOKSINS!!
Unglinga tímar í lyftingum!

í Tímunum er farið í helstu atriði almennrar styrktarþjálfunar með áherslu á lyftingar, þá bæði kraft- og ólympískar lyftingar. Markmiðið er að hafa fjölbreytta og skemmtilega tíma þar sem unglingarnir læra undirstöðu atriði lyftinga og styrktarþjálfunar.

Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl 14:30 - 15:30

Við byrjum þriðjudaginn 10.febrúar og önnin út Maí.

Verð 29.900 kr

Þjálfari er Sigurbjörn Bjarnason (Sibbi)

Linkur á Sportabler ( https://www.abler.io/shop/ka/lyftingar?program=Q2x1YlNlcnZpY2U6NTMyNjU= )

SJÁUMST Í ÍÞRÓTTAHÖLLINI Á LAUGARDAGINN!!
18/06/2025

SJÁUMST Í ÍÞRÓTTAHÖLLINI Á LAUGARDAGINN!!

20/03/2025

ATH BREYTT DAGSETNING!

Aðalfundur lyftingdeildar KA mun vera haldinn 25. mars nk. kl 17 upp í KA-heimili. Við hvetjum sem flesta til að mæta. Öll framboð og lagabreytingar verða að koma fram fyrir fundinn og sendist á [email protected] eða beint á formann.

Vonandi kemur þetta ekki að sök

Ef þið hafið fyrirspurnir heyrið þá í formanni eða varaformanni deildarinnar.

Sunnudaginn 29.september heldur Lyftingadeild KA og NORÐUR ólympískt lyftingamót í Njarðarnesi.Mótið er með óformlegum h...
28/08/2024

Sunnudaginn 29.september heldur Lyftingadeild KA og NORÐUR ólympískt lyftingamót í Njarðarnesi.
Mótið er með óformlegum hætti og er hugsað til þess að iðkendur fái smjörþefinn af því hvernig er að keppa í ólympískum lyftingum.
Mótið er einnig hugsað sem verklegt dómarapróf fyrir ný útskrifaða dómara lyftingadeildar KA.
Nánari dagsskrá og tímasetning kemur síðar.

Sunnudaginn 29.september heldur Lyftingadeild KA og NORÐUR ólympískt lyftingamót í Njarðarnesi. Mótið er með óformlegum hætti og er hugsað til þess að iðkendur fái smjörþefinn af því hvernig er að keppa í ólympískum lyftingum. Mótið er einnig hugsað sem verklegt dómarapr....

Lyftingadeild KA og Lyftingasamband íslands standa fyrir dómaranámskeiði í ólympískum lyftingum helgina 28-29.september....
28/08/2024

Lyftingadeild KA og Lyftingasamband íslands standa fyrir dómaranámskeiði í ólympískum lyftingum helgina 28-29.september.
Námskeiðið endar á skriflegu prófi sem veitir landsdómarapróf.
Nákvæmari dagsskrá og staðsetning verða auglýst síðar þegar fjöldi þátttakenda liggur fyrir.
Frekari upplýsingar veitir Birkir Örn í [email protected] eða Erna Héðinsdóttir í [email protected]

Lyftingadeild KA og Lyftingasamband íslands standa fyrir dómaranámskeiði í ólympískum lyftingum helgina 28-29 september. Námskeiðið endar á skriflegu prófi sem veitir landsdómarapróf. Nákvæmari dagsskrá og staðsetning verða auglýst síðar þegar fjöldi þátttakenda liggur fyri...

Það verður nóg um að vera í KA heimilinu um helgina!Lyftingadeild KA heldur í samstarfi við Möl og Sand alvöru lyftingah...
21/06/2024

Það verður nóg um að vera í KA heimilinu um helgina!
Lyftingadeild KA heldur í samstarfi við Möl og Sand alvöru lyftingahelgi dagana 22. & 23.júní! Hægt er að mæta í salinn og fylgjast með eða stilla inná streymi hjá KA TV!

Laugardaginn 22.júní kl 11:00 - 14:00 verður Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu!

Sunnudaginn 23.júní kl 11:00 - 14:00 verður sumarmót LSÍ og KA í ólympískum lyftingum!

Svona helgi væri ómöguleg án þess að hafa góða styrktaraðila og frábæra sjálfboðaliða og viljum við þakka öllum sem koma að mótinu á einn eða annan hátt innilega fyrir!

💛💙

Address

Tryggvabraut 22
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lyftingadeild KA posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Lyftingadeild KA:

Share

Category