14/08/2026
Skráningu lýkur á fimmtudag!
🐴 **Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga hjá Háfeta – skráning hafin!** 🐴
Langar barninu þínu að kynnast hestum eða efla færni sína í reiðmennsku í öruggu og skemmtilegu umhverfi?
Við bjóðum upp á tvo valkosti:
🐎 Sunnudagshópar (3 - 12 ára) – fyrir börn sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku. Foreldri eða annar fylgdarmaður tekur þátt í námskeiðinu með barninu.
🐎 Föstudagshópar (9–16 ára) – fyrir börn sem eru orðin sjálfstæðari.
✨ 5 skipti á 6 vikna tímabili
✨ Hópar miðast við aldur og getu
✨ Hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu
Við leggjum áherslu á jákvæða kennslu, öryggi og að hvert barn fái tækifæri til að læra og njóta samverunnar með hestunum.
👉 Skráning fer fram í Sportabler: https://www.abler.io/shop/hafeti?returnTo=%2F%3Fcountry%3DIS
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í Háfeta! 🐴