18/05/2026
Það styttist í tímabilslok hjá rafíþróttunum okkar 🎮🔥
Tímabilinu lýkur föstudaginn 22. maí og við viljum nýta síðustu dagana til að þakka fyrir geggjaðan vetur 💚 Það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með framförunum, stemningunni og félagsskapnum í hópnum allan veturinn.
Það kom svo upp möguleiki á að halda áfram aðeins lengur með mánudagsæfingarnar hjá miðstigi sem Oskar sér um, þannig þær munu halda áfram aðeins inn í sumarið 😊
Við ætlum ekki að vera með sérstök sumarnámskeið þar sem reynslan sýnir að flestir vilja frekar njóta sumarsins þegar fer að birta og hlýna og vera minna í tölvunni 😄
Takk fyrir frábært tímabil!