13/05/2026
Ágætu félagar,
Vinnudagur er hjá okkur á laugardaginn 16.maí og ætlum við að hittast í golfskálanum kl.10:00.
Læt fylgja með þessi helstu verkefni sem að við ætlum að gera:
-Sanda flatir og teiga
-Skera meðfram bönker köntum, fylla sand í bönkera og raka þá
-Bekkir og ruslatunnur settar á sinn stað við teiga
-Golfskáli þrifinn og gerður klár fyrir sumarið
-Hreinsa tjörnina ef að hún verður tóm
-Rétta af fjarlægðarstaura á æfingasvæði
-Klippa greinar af trjám sem að eru nálægt brautum
-Þá ætlum við að færa bjölluna af annari braut yfir á níundu braut
-Mála nokkra staura hvíta sem að eru hægra megin á annari og þriðju braut sem að afmarka völl með girðingu (til þess að skerpa á vallarmörkum).
-Setja gervigras á göngustíg á milli fyrstu og annara brautar
-Hlúa að æfingarflötinni okkar
Og svo fellur eitthvað fleira til en mér finnst atriði að vera með þetta listað upp fyrir vinnudag þannig að við séum með á hreinu hvað við erum að fara að gera.
Væri gott ef félagsmenn tækju með sér skóflur, strákústa, hjólbörur, kerrur, verkfæri.
Mbk
Sveinn Eyland
Formaður GÚ