03/09/2026
Góðan dag kæru íbúar
Nú líður að heilsuvikunni hér í Snæfellsbæ sem verður 23. -30. september og er ég að vinna í dagskrá þessarar skemmtilegu viku.
Eins og hefur verið síðustu ár þá hafa okkar frábæru fyrirtæki og einstaklingar hér í bæ verið dugleg að koma með tilboð, bjóða upp á eitthvað og tekið virkan þátt í heilsuvikunni.
Þess vegna langar mig að halda því áfram og biðja fyrirtæki og einstaklinga sem vilja vera með endilega að setja sig í samband við mig :)
Kær kveðja Margrét Sif Sævarsdóttir
Netfang: [email protected]
S. 8679450/4339912