03/09/2026
Glæsilegur árangur hjá Sigurbirni Þorgeirssyni
Sigurbjörn Þorgeirsson, félagi í Golfklúbbi Fjallabyggðar, átti frábært mót á fyrsta Evrópumóti 50+ karlalandsliða í 2. deild sem lauk í dag í Slóvakíu.
Sigurbjörn varð sigurvegari í einstaklingskeppninni eftir að hafa leikið hringina þrjá á 77, 70 og 73 höggum, samtals 220 höggum. Hann sigraði með fjögurra högga mun.
Íslenska liðið stóð sig einnig frábærlega og tryggði sér sigur í liðakeppninni með 23 högga mun. Með sigrinum tryggði liðið sér jafnframt sæti í efstu deild Evrópumótsins á næsta ári.
Það er því óhætt að segja að okkar maður hafi verið í góðum gír í Slóvakíu og við í Golfklúbbi Fjallabyggðar erum að sjálfsögðu stolt af honum.
Innilegar hamingjuóskir til Bjössa og íslenska liðsins með frábæran árangur! ⛳️
Íslenska 50+ karlalandsliðið í golfi stóð uppi sem sigurvegari á Evrópumóti landsliða í 2. deild sem lauk í dag á Sedin Golf Resort í Slóvakíu. Ísland hafði mikla yfirburði í mótinu og tryggði sér um leið sæti í efstu deild Evrópumótsins á næsta ári. Ísland lék hring...