15/09/2026
Á dögunum undirritaði Ísafjarðarbær samning við Rafstilling Reki um kaup á nýjum PRINOTH LEITWOLF LT 2026 snjótroðara fyrir Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar. Nýi troðarinn mun leysa af hólmi eldri troðara svæðisins frá árinu 2008. Troðarinn er meðal annars búinöflugri myllu, sérstyrktri tönn og tveimur göngusporum, með möguleika á allt að fjórum göngusporum samtímis ásamt fleiri tækni nýjungum.
Gert er ráð fyrir að nýi troðarinn komi til Ísafjarðar um miðjan nóvember og verður hann í kjölfarið standsettur og undirbúinn fyrir komandi skíðavetur.
Þegar standsetningu verður lokið verður efnt til opins húss á skíðasvæðinu, þar sem öllum verður boðið að koma og skoða nýja troðarann og annan búnað sem notaður er á skíðasvæðinu. Jafnframt verður þar tækifæri til að kynna sér þau verkefni og uppbyggingu sem fram undan eru á Skíðasvæði Ísafjarðarbæjar.