19/04/2026
🔔Höldum áfram með þjálfarakynningar 🔔
Regína Huld Guðbjarnadóttir. Regína kennir aðallega Hot Fit í heita salnum okkar, þar sem reynir á bæði þol, styrk og liðleika. Hún hefur einstakt lag á að skapa góða stemmingu í tímum og fólk fer undantekningarlaust út aðeins sterkara, í betra skapi og tilbúnara til að takast á við daginn eftir tímann.
Í grunninn er Regína hárgreiðslukona og það má segja að hún vinni jafnt með hár og heilsu, með sama auga fyrir smáatriðum, flæði og því að láta hlutina ganga upp. Hún er einstaklega snögg að lesa hópinn, grípa stemninguna og halda góðu tempói. Við mælum eindregið með að prófa tíma hjá henni, en hafiði í huga, að það getur verið erfitt að hætta þegar maður hefur prófað ❤️🔥❤️🔥