Iceland Ultra Trail Running Team

Iceland Ultra Trail Running Team Lið Íslands sem keppir á Heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum.

25-28 sept, HM í utanvegahlaupum.😀🇮🇸
15/04/2025

25-28 sept, HM í utanvegahlaupum.😀🇮🇸

Spain and the Pyrenees, the second most important mountain range in Europe, will host the World Mountain and Trail Running Championships (WMTRC) for the first time in their history from 25 to 28 September 2025. CanfrancPirineos, known worldwide for its iconic International Railway Station, is prepar...

01/06/2024

Glæsilegur árangur. ÁFRAM ÍSLAND! ❤️🇮🇸

31/05/2024

Dagurinn fyrir mót. Létt skokk, kíkt á Expo og svo auðvitað drykkjarstöðvarfundur. Á honum er aðstoð fyrir hvern og einn skipulögð og allt gert klárt fyrir stóra daginn á morgun. Förum snemma í háttinn, ræs 02:00 að íslenskum tíma... hlaupið hefst 04:45 að íslenskum tíma. Hér eru allir 100% tilbúnir. ÁFRAM ÍSLAND ❤️🇮🇸

30/05/2024
30/05/2024

Landsliðið skoðaði aðstæður í braut í dag undir leiðsögn Jonsson & Jonsson. 😃 Geggjað umhverfi sem hlaupið er um og spennan hjá okkar fólki eykst. 🇮🇸❤️
🎥🎬 Sigurður Pétur

29/05/2024

Landslið Íslands í utanvegahlaupum er mætt á Evrópumeistaramótið í Annecy Frakklandi. Ekkert betra en að hreyfa þessar lappir aðeins eftir langt ferðalag. 🇮🇸❤️
🎥🎬 Sigurður Pétur

Evrópumótið í utanvegahlaupum er að skella á. Íslensku hlaupararnir keppa laugardaginn 1.júní og hefst hlaupið 06:45 að ...
27/05/2024

Evrópumótið í utanvegahlaupum er að skella á. Íslensku hlaupararnir keppa laugardaginn 1.júní og hefst hlaupið 06:45 að staðartíma í Frakklandi ( 04:45 að íslenskum tíma ). ÁFRAM ÍSLAND.🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸 Hægt er að fylgjast með okkar hlaupurum í gegnum þessa slóð:

Live and Result go to the timekeeper's website LiveTv - by Tv 8Mt Blanc and the help of the Haute-Savoie departmental council Diffusion – AthléTV – 8 Mont Blanc (TNT canal 31 en Savoie et Haute Savoie) boxes : SFR canal 30 ou 600, Orange canal 30 ou 343, Bouygues canal 30 ou 318, Free canal 30 ...

Evrópumótið í utanvegahlaupum verður haldið í Annecy Frakklandi þann 1.júní.  Frjálsíþróttasamband Íslands sendir sitt s...
03/04/2024

Evrópumótið í utanvegahlaupum verður haldið í Annecy Frakklandi þann 1.júní. Frjálsíþróttasamband Íslands sendir sitt sterkasta lið á mótið. 🇮🇸🇮🇸🇮🇸🇮🇸
Landslið Íslands skipa:
Andrea Kolbeinsdóttir - ÍR
Íris Anna Skúladóttir - FH
Halldóra Huld Ingvarsdóttir - FH
Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir - UFA
Snorri Björnsson - FH
Þorbergur Ingi Jónsson - UFA
Þorsteinn Roy Jóhannsson - FH
Sigurjón Ernir Sturluson - FH
Liðsstjóri verður Friðleifur Friðleifsson.
Hlaupið er 60km með 3500m hækkun. Linkur á brautina er hér: https://tracedetrail.fr/fr/trace/trace/247519 🧐
Þetta verður enn ein veislan hjá okkar bestu utanvegahlaupurum.🏃‍♀️
🏃🇮🇸

10/06/2023

Landslið Íslands í utanvegahlaupum hefur lokið keppni á heimsmeistaramótinu í Innsbruck 2023. Við þökkum hlaupurum, aðstoðarfólki, Frjálsíþróttasambandi Íslands og öllum frábæru styrkaraðilum okkar kærlega fyrir þeirra framlag. Þið eruð öll landsliðið í utanvegahlaupum. TAKK 🇮🇸❤️.

10/06/2023

Það voru fjórir íslenskir landsliðsmenn í utanvegahlaupum sem lögðu af stað í 87 km keppnislengdina hér á heimsmeistaramótinu í utanvegahlaupum.🙂 Tvö þeirra að keppa í fyrsta skipti á HM , hin tvö hokin af reynslu í þessum bransa. Fróðlegur dagur framundann sagði einhver og það voru orð að sönnu. Að komast á ráslínu í svona hlaupi er eitt, að klára það er annað. Sem dæmi fóru 135 konur af stað en einungis 69 kláruðu hlaupið. Íslensku hlaupararnir kláruðu öll hlaupið en það er svo langt frá því að vera sjálfsagt enda um mjög krefjandi braut að ræða sem þræddi nánast hvert einasta fjall frá Stubai til Innsbruck.💪 Innilega til hamingju með þetta afrek öll. 👏👏👏👏
Íslenska landsliðið hefur staðið sig frábærlega í báðum keppnisvegalengdum hér á heimsmeistaramótinu í Innskbruck og við erum í bland stolt, hrærð og meyr þegar við sjáum þetta flotta landsliðsfólk okkar hlaupa í mark með íslenska fánann. Áfram Ísland. 🇮🇸❤️

Allir íslensku keppendurnir komnir í mark í 87km hlaupinu á Heimsmeistaramótinu í Innsbruck.  Algjörlega magnað. 🏃‍♀️🇮🇸🏃...
09/06/2023

Allir íslensku keppendurnir komnir í mark í 87km hlaupinu á Heimsmeistaramótinu í Innsbruck. Algjörlega magnað. 🏃‍♀️🇮🇸🏃🇮🇸🥰

Adresse

Annecy
74000

Site Web

Notifications

Soyez le premier à savoir et laissez-nous vous envoyer un courriel lorsque Iceland Ultra Trail Running Team publie des nouvelles et des promotions. Votre adresse e-mail ne sera pas utilisée à d'autres fins, et vous pouvez vous désabonner à tout moment.

Partager