Granny goes wild

Granny goes wild Ironman Scandinavian Tour & Double Danish.

Double Danish er 1/2 Ironman í Kronborg í Danmörku 18 júní og 1/1 í Kaupmannahöfn 20 ágúst Með því að bæta við Jönköbing 9 júlí klárst serían Scandinavian Tour.

Au pair fer í ferðalag 1 þáttur.Loksins komið að því að fara í ferðalag, enda búin að vera í heila viku heima.Au pair da...
14/10/2024

Au pair fer í ferðalag 1 þáttur.

Loksins komið að því að fara í ferðalag, enda búin að vera í heila viku heima.
Au pair daman var búin að pakka niður og gera og græa svo morguninn var nýttur í að taka í sundur gufustrauþjarkinn og þrífa hann ærlega. Fengum góðvin okkar til að skue okkur á völlinn því fyrr frýs í hel áður en við borgum 27000 kall fyrir bílastæði á KEF. Tékk inn til fyrirmyndar og allt skotgekk. Nú er bara að bíða eftir að byrðing hefjist. Notum tímann á Loksins bar og tökum út skilvirkni og alúð starfsmanna.

Tveggja ára í dag 🎉✨ Elsku Hallgrímur, viðgerðarmeistari og búðakall gerir lífið fjörugar.
09/10/2024

Tveggja ára í dag 🎉✨ Elsku Hallgrímur, viðgerðarmeistari og búðakall gerir lífið fjörugar.

Ég var vist buin að lofa ferðasögu úr Draumaferðinni.  Hér hefst sagan:Sagan hefst á Íslandi, fórum á fætur kl 4, og vor...
18/01/2024

Ég var vist buin að lofa ferðasögu úr Draumaferðinni. Hér hefst sagan:
Sagan hefst á Íslandi, fórum á fætur kl 4, og vorum komin á völlinn kl 5.15
Vorum ákveðin i að vera snemma á ferðinni, þar sem reynslan hefur kennt okkur að ekki eru allir starfsmenn þrautþjálfaðir í því sem þeir eiga að gera. Gott plan, þar sem ungi pilturinn sem tékkaði okkur inn vissi alls ekki hvernig ætti að tékka inn Kef - Amsterdam - Dubai. Niðurstaðan var að ég fékk brottfararspjald alla leið, en ekki kærastinn. Taskan hans var hins vegar tékkuð inn alla leið til Duabai.
Flugið var síðan tilbreytingarlaust, til Amsterdam, ( skrýtið að sjá Iceair fluffurnar í hjásíðum úlpum að taka á móti farþegum, kunni betur við jakka og klút eins og í gamladaga :-) )
Þegar við komum til Amsterdam, fórum við frá Terminal 1 yfir í Terminal 3. Leituðum að Emirates office til að fá brottfararspjald fyrir kærastann, en viti menn, það er ekkert svoleiðis!! Hittum hins vegar ákaflega liðlegan starfsmann vallarins, sem hringdi út um allt til að finna út hvað gera ætti. Niðurstaðan var að við þurftum að fara út og hefja allt ferlið á ný, þ.e. Tékka inn frá grunni. Ekki það sem var planað, og ekki laust við að smá pirringur gerði vart við sig....
90 mín. síðar og eftir mikið ves. var allt klárt svo við gætum farið í vopnaleit nr 4 þennan dag. Náðum vélinni, þar sem hún var 40 mín of sein. N.B. við vorum með 2.5 tima í buffer fyrir transit, svo ég mun ALDREI. ferðast með minna en það framvegis.
tæplega 7 tíma flug til Dubai endaði bara fallega - og vorum við komin á Hilton Habtoor Palace um 2 eftir miðnætti.
Mjög gott að komast í bælið eftir ferðalagið.
Fórum seint á fætur, slepptum morgunverði, og tókum léttan lunch í staðin. Hótelið okkar er Habtoor Palace, en við höfum aðgang að sundlaugasvæði 3 5* hótela, Habtoor Palace, Hilton og V Curio Collection. Prufuðum öll svæðin í dag, og allt stóðst væntngar.
Enduðum ´siðan í dinner á frábæru steikhúsi, innan hótelsins, og svei mér ef þetta var bara ekki með betri máltíðum sem ég hef fengið lengi.
Enduðum í Night Cap fyrir utan hótelið.
Meira síðar.. en á morgun eru ný ævintýri :-)

Monday again. Easy swim and a very tough bike ride on trainer! Still far away from my 42 k swimtotal in January - 12650 ...
15/01/2018

Monday again. Easy swim and a very tough bike ride on trainer! Still far away from my 42 k swimtotal in January - 12650 done 29.350m left and 15 days to go 🏊💪🏾🏊

14/01/2018

Next task is on the calendar - Ironman New Zealand March 3rd. My training has already started, I bought a plan through training peaks.24-week training plan for busy people by Phil Mosley.
Training has been up and down since I started, mostly due to the very busy season at work, Yes life can get in the way sometimes.Now build phase 2 week 1 is about to finish :-)

Inspirasjon dagsins: Leif Hakan er 72 ára gamall. Hann ákvað fyrir 4 árum að skella sér í þríþraut. Hann synti í í dag 1...
09/07/2017

Inspirasjon dagsins: Leif Hakan er 72 ára gamall. Hann ákvað fyrir 4 árum að skella sér í þríþraut. Hann synti í í dag 1900 metra á bringusundi á 55 mín, hjólaði 90 km á innan við 3 tímum og hljóp hálft maraþon á tæpum þremur tímum. Ef þetta er ekki frábær árangur þá veit ég ekki hvað. Nú er hann að fara á heimsmeistaramót í hálfum Ironman í suður Afríku í september 2018. Þetta er rokkstjarna!

Þraut 2 í Scandinavian Tour lokið. Þá er næst 20 ágúst - KMD Ironman 140.6
09/07/2017

Þraut 2 í Scandinavian Tour lokið. Þá er næst 20 ágúst - KMD Ironman 140.6

Eftir morgunverð kláraði ég að raða í pokana, rauða pokann fyrir hlaupadótið, og bláa pokann fyrir hjóladótið. Fór síðan...
08/07/2017

Eftir morgunverð kláraði ég að raða í pokana, rauða pokann fyrir hlaupadótið, og bláa pokann fyrir hjóladótið. Fór síðan í smávegis hjólatúr um svæðið tékka hvort allt virkaði ekki og hjólið var bara alveg fyrirtak. Leitaði að skiptistöð 1, en hún er mjög langt frá sundsvæðinu, og það var erfitt að finna hana. En allt hófst það. Fór síðan á hótelið, náði í pokana og skilaði þeim og hjólinu inn.Það er mikill léttir þegar því er lokið, því þá einhvern veginn getur maður ekki lengur verið að væflast með hvort þetta eða hitt sé nauðsynlegt.Klukkan var þá orðin 3 svo við fengum okkur snemmbæran kvöldverð. Mér finnst betra að borða vel fyrr, og léttara um kvöldið. á meðan við sátum á veitingahúsinu kom úrhellisrigning, svo nú er hjólið mitt aldeildis búið að fá bað. Þetta þýðir sennilega að ég þarf aðeins að smyrja hjólið í fyrramálið því ég er með sportolíu á því sem lekur auðveldlega af bleytu, og þetta var svo sannarlega næsti bær við Nóaflóð. eftir matinn fórum við í búðina til að kaupa vatn og batterý fyrir pedalana mína, og svo beint upp á hótel.Þar héldum þar til við sjónvarpsglap og almenna slökun það sem eftir lifði dags, enda planið að hvíla vel. fórum aðeins niður í léttmeti, og svo er planið að sofna snemma og mæta til leiks 100% hvíld og klár í slaginn í fyrramálið. Er mjög slök, og hlakka bara til morgundagsins. BIB númerið mitt er 585 og ég er ræst út rúmlega 9 í fyrramálið eða kl. 7 að íslenskum tíma.hægt er að fylgjast með á tracker sem ég smelli inn á eftir.

Vinna eins og venjulega fimmtudag, farið i nudd og síðan klárað að pakka. Komin upp á flugvöll um 10, því vélin fór 00:3...
08/07/2017

Vinna eins og venjulega fimmtudag, farið i nudd og síðan klárað að pakka. Komin upp á flugvöll um 10, því vélin fór 00:30 tíðindalaust flug - lent á Landvettern í Gautaborg og þaðan tekinn bus á lestarstöðina. Töluverðar seinkanir í gangi, en allt gekk þó upp. skiptum um lest í Falkobing, og tókum aðra til Jönköbing. hótelið er í göngufæri við lestarstöina svo við skottuðumst bara með farangurinn þangað. Herbergið var ekki klárt, svo við skutluðum dótinu í geymslu og fóru og fengum okkur snæðing. Kíktum á Expóið, ég skráði mig inn og gekk frá dagpassa hjá sænska þríþrautarsambandinu. Eftir það fórum við á Hótelið, þar sem ég setti saman hjólið fyrir utan hótelið. að því loknu var herbergið klárt svo við gátum tékkað inn. Eftir smá kríu var farið í að útvega nauðsynjar sem höfðu gleymst heima, eins og t.d. viðgerðarkitið..... :-) Race briefing í Operuhúsinu - þar sem farið var yfir reglur og fyrirkomulag keppninnar. Út að borða um kvöldið á ágætis stað. Komin í koju fyrir kl 22 enda orðin frekar lúin eftir slitróttan svefn síðasta sólarhringinn.

Ármannshlaupið - vá hvað það var skemmtilegt. Hitti fullt af fólki sem ég hef ekki séð lengi, og veðrið var bara alveg s...
08/07/2017

Ármannshlaupið - vá hvað það var skemmtilegt. Hitti fullt af fólki sem ég hef ekki séð lengi, og veðrið var bara alveg skínandi fínt. Hljóp með Siggu Parísardömu, eða alveg þangað til hún stakk mig af. Náði PB svo ég er bara sátt, er alveg að verða komin á þann stað hlaupalega séð sem ég var á fyrir brjósklosaðgerðina. Eftir hlaupið var farið í sund, og síðan voru endurfundir hjá Parísardömunum ( dömurnar sem fóru með mér í Ecotrail Paris 80 km í mars 2016 ) það var hrikalega gaman að hittast. Alveg framúrskarandi dagur.

MoVnday Monday... úff hvað það er stundum erfitt að fara fram úr. en það tókst þó. Engin æfing á plani í dag, enda mikið...
08/07/2017

MoVnday Monday... úff hvað það er stundum erfitt að fara fram úr. en það tókst þó. Engin æfing á plani í dag, enda mikið að gera í vinnunni. vann fram yfir miðnætti, á ferlega vondum skóm, mun sennilega borga fyrir það næstu daga með aumum tásum.

Adresse

Norrevej 80
Snekkersten
3070

Telefon

3547757060

Internet side

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Granny goes wild sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Del