15/12/2024
Þá er það ákveðið.
Cressidan fær smá pásu þar til að áhuginn finnst fyrir því að klára /laga hana eins og þarf, þar sem boddyið er orðið frekar slappt og tjónað.
Það var verslaður einn is200 fyrir stuttu og verður það næsti keppnisbíll.
Margt er búið að kaupa og smíða og nú næst er að koma þessu öllu fyrir í bílnum.
Ofan í hann fer 3.2 vr6 (Auðvitað) og 8 gíra skipting (já sjálfskipting) og verður fróðlegt að sjá hvernig þetta vinnur saman! Og auðvitað fer stór túrbína á þetta 😎