02/09/2024
Sumarið hefur verið skemmtilegt á Bjarnastöðum, en allt of fljótt að líða eins og flest árin.
Það hafa verið haldnir byrjenda-, þrautabrauta- og útreiðarnámskeið. Það var farið í 4 dagar hestaferð með gistingu fyrir hross í 3 nætur á tveimur stöðum og knapar i 1 nótt. Við þökkum hjónum Siggu og Baldri í Kirkjuferju fyrir góða móttöku og Hestamannafelagið Ljúfur sem styrkti öll börnin frá Hveragerði og úr Ölfusi til að geta tekið þátt á námskeiðum sumarsins. Einnig fengum við og hrossin að gista upp í dal á félagssvæði Ljúfs, við í félagsheimilinu og hrossin á beit og erum við gríðarlega þakklátt fyrir þennan möguleika. Það var s.s. riðið frá Bjarnastöðum að Kirkjuferju, svo upp í dal, þaðan upp í Reykjadalinn til að leggjast i heita lækin, svo aftur heim að Bjarnastöðum.
Að loknum hestaferðinni héldu börnin hestamót, þar sem keppt var í þrautabraut, hindrunarstökki, gangtegundir og mjólkutölti. Mótið var opnað með skrautreið og var mótið einstaklega vel skipulagt, flott verðlaun í barna- og fullorðinsflokki. Við þökkum fyrir okkur 🐴🥳🥇🥈🥉🐴❤️
Á meðan allt þetta for fram voru Katla og Marta að æfa á Sóma og Sleipnir fyrir úrtöku á Landsmóti og fengu þær báðar rétt til að keppa þar og stóðu þær sig frábærlega ásamt öðrum börnum úr Ljúfi. Innilega til hamingju börnin og Ljúfur með þennan árangur.
Veðrið var ekki alltaf upp á sitt besta í sumar og vorum við stundum hrædd um að knapa mundi fjúka af hestanum.
Það komu líka nokkur folöld og greyið folaldinu sem kom 5.6. var bara kalt í 5 stiga hita og norðan átt, svo hann fékk lopapeysu að láni í nokkra dagar... Sólin lét líka sjá sig annars slagi og rigning var sjaldan á meðan námskeiðin stóðu, en hvort sem var, skemmdi veðrið ekki fyrir okkur eins og má sjá á myndunum 🌞
Eins og áður nefnd var sumarið viðburðaríkt og skemmtilegt og vildu margir halda áfram um haustið. Því miður sjáum við okkur ekki fært um að vera með vikuleg haustnámskeið í ár, en það gæti verið að við auglýsum helgarnámskeið ef veðrið og tíminn leyfir.
Við þökkum fyrir sumarið ❤️