15/09/2026
Frábær fræðsluviðburður með Kara | meðvituð hreyfing í stöðinni fyrir allar mömmurnar okkar í Mömmuþjálfun 💕
Kara ræddi við okkur um álagsstýringu í æfingum eftir meðgöngu, grindarbotninn, kviðinn og algengar mýtur 💪🏼
Okkur finnst gríðarlega mikilvægt að fræða mútturnar okkar til að auka sjálfstraustið þeirra í styrktarþjálfun og þeirra uppbyggingarferli sem við erum svo heppin að fá að vera hluti af 🥰
Takk kærlega fyrir stuðninginn Brauð & Co og WODBÚÐ 🦩 en við fengum frábærar veitingar og allar sem mættu fóru í happdrætti og geta græjað sér fallegan æfingabol 😍