26/07/2026
🤎 Reiðnámskeið á Vallarhjáleigu í Flóahrepp
4.–7. ágúst og 10.–14. ágúst
Fyrir börn og unglinga, 6 ára og eldri.�Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem lengra komnum.�Kennslan fer fram á reiðskólahestum sem henta ólíkum aldri og getustigum.
📍 Vallarhjáleiga, 804 Selfoss
Á námskeiðinu verður meðal annars:�
✨ Reiðkennsla
✨ Trek- og þrautabrautaræfingar
✨ Leikir og skemmtun
✨ Örugg umgengni við hesta
✨ Bæta samspil ábendinga
📩 Skráning og nánari upplýsingar í einkaskilaboðum (pm) eða á netfangið [email protected]
Kennarar á námskeiðinu eru Birna Tryggvadóttir, útskrifaður reiðkennari frá Hólaskóla, og Inga Dröfn Sváfnisdóttir, útskrifaður hestafræðingur frá Hólaskóla.
Dagsetningar og verð:
4.–7. ágúst�🐴 Hálfur dagur 09:00–12:00 – 28.000 kr.�🐴 Fullur dagur 09:00–16:00 – 44.000 kr.
10.–14. ágúst�🐴 Hálfur dagur 09:00–12:00 – 35.000 kr.�🐴 Fullur dagur 09:00–16:00 – 55.000 kr.
Hægt er að nýta frístundastyrk sveitarfélaga vegna þátttöku á námskeiðinu. Einnig er veittur 5% systkinaafsláttur.