Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls.

16/09/2026
Þá er komið að því ⛹️‍♀️⛹️ Búiningapöntun fyrir þau sem stækkuðu í sumar, fyrir þau sem eru að koma inn ný og þeim sem l...
15/09/2026

Þá er komið að því ⛹️‍♀️⛹️
Búiningapöntun fyrir þau sem stækkuðu í sumar, fyrir þau sem eru að koma inn ný og þeim sem langar í nýjan búning.
Næsta pöntun verður gerð 1.október nk.
Pantanir í link 👇 See less

10/09/2026

Ert þú eða einhver sem þú þekkir með áhuga á körfubolta eða jafnvel grjótharður stúkudómari sem dreymir um að komast á gólfið með flautuna? 🏀
Nú er tækifærið fyrir öll þau sem vilja kafa dýpra í körfuboltareglurnar að sækja sér dómararéttindi til dómgæslu á vegum KKÍ.

Skráning á skrifstofu skólans.

Leikir yngri flokka eru margir hvert tímabil og það er nokkuð ljóst að leikurinn fer ekki fram án dómara. Við hvetjum al...
25/08/2026

Leikir yngri flokka eru margir hvert tímabil og það er nokkuð ljóst að leikurinn fer ekki fram án dómara. Við hvetjum alla áhugasama til að skoða þetta námskeið og taka þátt í starfinu með okkur á komandi tímabili.

Laugardaginn 5. september 2026 stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Námskeiðið fer fram á íslensku en er opið öllum. Námskeiðið hefst kl. 9:00 og stendur fram til kl. 17:00. Allir þátttakendur ljúka námskeiði sem dómarar Boðið verður upp á hádegismat. Efni námskeiðsins snýr að grunni í dómgæslu, s.s. leikreglum og staðsetningu á leikvelli. Skráning stendur til fimmtudagsins 3. september 2026.

Þann 5. september stendur KKÍ fyrir dómaranámskeiði í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, Engjavegi 6, 104 Reykjavík.

23/08/2026

Kæru stuðningsmenn
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur, að vandlega ígrunduðu máli, ákveðið að karlalið félagsins taki þátt í ENBL tímabilið 2026/2027. Jafnframt var skoðað hvort þátttaka í FIBA Europe Cup væri raunhæfur kostur. Þar hefði liðið þurft að leika 10 leiki frá 8. október og fram að jólum, og mat stjórnin það fyrirkomulag nánast ógerlegt fyrir íslenskt lið á Norðurlandi.
Í ENBL keppninni mun Tindastóll leika þrjá leiki í einni ferð í lok september, sem styttir biðina eftir alvöru leikjum og nýtist liðinu vel í undirbúningi fyrir tímabilið. Á tímabilinu sjálfu verða fjórir heimaleikir leiknir á Sauðárkróki og líkur eru á að þekkt lið komi í heimsókn. Þá fer liðið einnig eina ferð erlendis og leikur þar einn leik. Allir heimaleikir Tindastóls í ENBL verða eingöngu aðgengilegir á Tindastóll TV og útileikirnir verða einnig sýndir þar.
Er það von stjórnar kkd Tindastóls að þetta muni auka skemmtun stuðningsmanna og verða góð kynning fyrir Skagafjörð í leiðinni. Við hlökkum til að takast á við verkefnið með liðinu, samstarfsaðilum og okkar frábæru stuðningsmönnum. Saman getum við gert tímabilið 2026/2027 að eftirminnilegri upplifun fyrir félagið og alla Skagfirðinga.

Address

Sauðárkrókur

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls:

Shortcuts

Share

Category