16/05/2024
„Allir með – farsælt samfélag fyrir alla - brúum bilið“ er samstarfsverkefni
íþróttahreyfingarinnar ÍSÍ, UMFÍ og ÍF
Félags- og vinnumálaráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið og mennta og barnamálaráðuneytið styrktu verkefnið sem miðar að því að efla sérstaklega íþróttaástundun fatlaðra barna og ungmenna.
Stuðningur ráðuneytanna er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem Ísland fullgilti 2016 og í núverandi stjórnarsáttmála er kveðið á um lögfestingu samningsins þar sem m.a. er að finna skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra í íslensku samfélagi.
Íþróttahreyfingin hefur tekið að sér framkvæmd verkefnisins sem verður unnið á tímabilinu 2023 –2025.
Markmið verkefnisins:
- Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþrótthreyfinguna
- Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nær umhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir – með viðeigandi aðlögun.
- Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.
Búið er að ráða verkefnisstjóra að verkefninu og hefur hann aðstöðu á skrifstofu ÍF (Íþróttasamband
fatlaðra).
Verkefnisstjóri er Valdimar Gunnarsson netfang [email protected] sími 894 8503
Hlutverk verkefnisstjórans er greining, ráðgjöf, aðstoð og eftirfylgni með verkefninu.
Heimasíða verkefnisins er
Verkefnið „Allir með“ er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra). Verkefnið er þriggjá ára verkefni sem er liður í að ná markmiðum 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar eru skýr ákvæði um viðeigandi aðlögun allra ...