16/06/2026
Viktor Máni Steffensen hefur ákveðið að halda á ný mið og mun leika með Breiðabliki á komandi keppnistímabili.
Viktor er uppalinn Fjölnismaður og hefur verið einn af burðarásum meistaraflokks karla undanfarin ár. Með frammistöðu sinni hefur hann skipað sér í hóp bestu leikmanna 1. deildar og var meðal annars valinn í lið ársins í fyrra.
Á nýliðnu tímabili lék Viktor 26 leiki fyrir Fjölni og skoraði að meðaltali 19,8 stig í leik, auk þess að taka 5,4 fráköst og gefa 4,8 stoðsendingar. Framlag hans innan vallar sem utan hefur verið gríðarlega mikilvægt en sem uppalinn Fjölnismaður hefur Viktor verið stór hluti af starfi félagsins um árabil og verður hans án efa saknað.
Fjölnir þakkar Viktori fyrir framlagið til félagsins og óskar honum góðs gengis í nýju umhverfi.