20/11/2025
Góðan daginn kæru pílarar
Eins og einhverjir muna þá átti að vera pílumót föstudaginn 28. nóvember en vegna ofbókunar á KR heimilinu þá verðum við því miður að hætta við mótið. Og sökum mikilla anna í KR heimilinu fram að jólum þá sjáum við því miður ekki fram á það að halda mót fyrir áramót.
Okkur þykir þetta mjög leiðinlegt en munum mæta tvíefldir til leiks eftir áramót og bæta við allavegana einu móti. Þannig reikna má með einu móti í mánuði fram að sumri!
Þannig nú geta menn sett þessa fjóra föstudaga á næsta ári í dagatalið sitt.
Við byrjum 2026 af krafti með móti föstudaginn 9. Janúar.
Fylgjum því svo eftir með mótum fyrsta föstudaginn í febrúar og mars. Það er föstudaginn 6. Febrúar og föstudaginn 6. Mars.
Síðan slúttum við pílutímabilinu með styrktarkvöldi fyrir fótboltann í KR föstudaginn 17. April. * Þó viljum við taka það fram að sú dagsetning er með fyrirvara um leikjafyrirkomulag í Bestu deildinni.
Kær KR kveðja
Stjórn Píluvinafélags KR