09/03/2026
🏆 Frísk í Fjölni – frábær árangur í Lífshlaupinu! 🏃♀️
Við viljum enn og aftur óska öllum þátttakendum í Frísk í Fjölni innilega til hamingju með frábæran árangur í Lífshlaupinu í ár. Lífshlaupið er árlegt hreyfiátak sem hvetur fólk til að hreyfa sig reglulega og efla heilsu og vellíðan. Verkefnið er skipulagt af Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og fer fram á hverju ári, yfirleitt í febrúar.
Frísk í Fjölni tók nú þátt í þriðja sinn og var þátttakan frábær. Það er virkilega gaman að sjá hversu margir tóku þátt og lögðu sitt af mörkum til að hreyfa sig og safna dögum og mínútum í virknibankann :)
Frísk í Fjölni náði frábærum árangri í sínum flokki:
🥈 2. sæti yfir fjölda daga
🥉 3. sæti yfir fjölda mínútna
Til að hvetja til þátttöku voru dregnir út þrír heppnir þátttakendur úr hópnum sem skráðu sig í Lífshlaupið. Þau sem komu upp úr pottinum í ár eru:
• Guðlaugur Þór Böðvarsson
• Hrönn Bjarnþórsdóttir
• Þuríður Jana Ágústsdóttir
Við óskum þeim innilega til hamingju með vinninginn! 🎉
Vinningarnir voru einstaklega glæsilegir og viljum við senda kærar þakkir til fyrirtækjanna sem studdu verkefnið:
Nathan, Mjólkursamsalan og Vogabær. Stuðningur þeirra hjálpar okkur að hvetja enn fleiri til að taka þátt í hreyfingu og samfélagi Frísk verkefnanna. 🙏
Hér fyrir neðan má sjá myndir af hópunum í Frísk í Fjölni með verðlaunagripina úr Lífshlaupinu, ásamt myndum af vinningunum sem voru í gjafapokunum.
Takk fyrir frábæra þátttöku – við hlökkum til næsta Lífshlaups! 💙