28/12/2025
Vegna frétta um fyrirhugaðrar uppsetningu á padelvelli í gamla íþróttahúsinu á Reyðarfirði sem birtist á mbl í gær sendi stjórn Vals eftirfarandi erindi á bæjarráð í dag:
Til bæjarráðs,
Ungmennafélagið Valur á Reyðarfirði vill koma á framfæri áhyggjum sínum vegna þess að ekki hafi verið haft samráð við félagið í tengslum við uppsetningu á padelvelli í gamla íþróttahúsinu á Reyðarfirði. Á fundi Fjölskyldunefndar þann 13. október sl. var bókað að samráð ætti að hafa við Val, ásamt skólastjórum í Grunnskóla Reyðarfjarðar og Grunnskóla Eskifjarðar. Ekkert var haft samband við stjórn félagsins og frétti félagið af áformum varðandi padelvöllinn í fjölmiðlum. Félagið telur slíkt samráð mikilvægt, enda hefur uppsetning á padelvelli í íþróttahúsinu áhrif á starfsemi þess og á iðkendur, ásamt því að þetta mun hafa neikvæð áhrif á íþróttakennslu fyrir grunnskólana sem nýta húsið.
Félagið er meðvitað um að grunnskólinn hefur komið á framfæri áhyggjum og athugasemdum varðandi uppsetninguna. Þrátt fyrir það virðist sem ekki hafi verið hlustað nægilega á þessi sjónarmið né tekið tillit til þeirra í ákvarðanatöku. Félagið telur mikilvægt að raddir skólans fái raunverulega umfjöllun, þar sem þær byggja á faglegri reynslu og varða hagsmuni nemenda og skólasamfélagsins í heild.
Uppsetning padelvallar myndi takmarka möguleika til annarrar íþróttaiðkunar barna, þar sem rýmið nýtist í dag fjölbreyttum æfingum. Ungmennafélagið er með skipulagðar íþróttaæfingar í húsinu þrisvar í viku, eða fimm æfingar samtals og er aðstaðan því mikilvæg fyrir starf félagsins. Þá er óraunhæft að gera ráð fyrir íþróttakennslu í höllinni yfir vetrartímann, þar sem þar myndast oft mikill kuldi sem hentar illa kennslu og hreyfingu barna, eins og kemur fram í minnisblaði frá fjölskyldunefnd að íþróttakennsla í höllinni eigi að leysa íþróttakennslu í íþróttahúsinu af hólmi. Einnig er búnaður í höllinni af skornum skammti og því ekki fjölbreytt kennsla sem myndi fara þar fram. Tvær skólastofnanir nýta íþróttahúsin nú þegar, og telur félagið því er ekki tímabært að ráðast í slíkar breytingar á meðan Eskifjarðarskóli er jafnframt háður aðstöðunni.
Íþróttahúsið er jafnframt kjöraðstaða fyrir glímuiðkun, sem myndi þurfa að víkja ef rýmið yrði sérhæft fyrir eina íþróttagrein. Almennt má segja að margt í núverandi starfsemi þyrfti að víkja fyrir sérhæfðri íþrótt, sem hefði í för með sér að íþróttaiðkun barna yrði sett til hliðar fyrir hagsmuni fárra.
Ungmennafélaginu Val þykir óskiljanlegt að ekki hafi reynst mögulegt að gera við loftræstikerfið í íþróttahúsinu þegar um er að ræða aðstöðu sem börn nýta daglega til íþróttaiðkunar. Félagið bendir á að á sama tíma virðist enginn vandi standa í vegi fyrir viðgerð á loftræstikerfinu þegar fyrirhugað er að setja upp padelvöll. Þetta vekur upp spurningar um forgangsröðun og hvort nægilegt tillit sé tekið til þarfa barna og ungmenna sem stunda íþróttir í húsinu. Ungmennafélagið Valur styður við fjölbreytta íþróttaiðkun en telur að sérhæfing á salnum sé ekki til þess að styðja við það. Óskum við því eftir að uppsetning á padelvelli í íþróttahúsinu á Reyðarfirði verði endurskoðuð og haft verður samráð við Ungmennafélagið varðandi nýtingu á húsinu.
Virðingarfyllst,
Stjórn Ungmennafélagsins Vals