17/09/2026
Virkilega sterkt stig við mjög svo krefjandi aðstæður!
Leikirnir víð Wimbledon eru líklega þeir skemmtilegustu sem við fáum á tímabilinu.
Aðstæður minntu einna helst á myndina Rocky 4, þar sem Rocky skellti sér til Rússlands að berjast við Ivan Drago. Hann var með Rússnesku þjóðina gegn sér, að þessu sinni voru það 95% áhorfenda sem svo gjörsamlega létu okkar menn heyra það.
Þessi leikur var algert stríð og sem betur fer sýndu okkar menn mikinn karakter og héldu haus.
Undirritaður verður að viðurkenna að það er mjög langt síðan hann hefur séð annan eins fjölda af skallaeinvígum.
Þegar allt er tekið saman þá tökum við stiginu og bíðum spenntir eftir næstu viðureign sem fram í apríl mánuði, þar sem við sýnum hver er stóri bróðirinn og hverjir eru hinir einu sönnu Dons-arar!!
Paul Warne er okkar maður!!!
MK all day!!!
Eins og ávallt, come on you Dons!!!!!
Milton Keynes Dons Supporters Association - MKDSA
Milton Keynes Dons